Nokkur heilræði.
Fyrir farsímanotendur:
Notið símann ávalt stutt í einu.
Frávísið farsímanúmerinu í venjulegan síma ef þess er nokkur kostur.
Haldið tólinu, meðan talað er, þannig að loftnetið sé sem lengst frá höfðinu.
Í bílum er æskilegt að nota bílasett með utanáliggjandi loftneti.
Geymið símann í brjóstvasa frekar en við mittið.
Látið símann ekki vera nálægt ungabörnum.
Látið börn ekki tala í farsíma með áföstu loftneti.
Ófrískar konur ættu ekki að nota farsíma.
Höfuð barna og kvenna drekka í sig hærra hlutfall sendiorku en höfuð karla.Af gefnu tilefni er ástæða til varúðar.
Fyrir heimilið:
Svefnherbergin eru mikilvægust.
Takið því öll rafmagnstæki úr sambandi yfir nóttina. Það er oft ekki nóg að slökkva.
Gætið að hvað er hinumegin við veggi. Er nágranninn kannski með sjónvarp þar?
Hugið að inntaki hitaveitu og stofntaugum rafmagns. Mikið rafsegulsvið er frá þeim og því er ekki æskilegt að hafa þær lagnir nálægt svefnherbergjum.
Athugið að ef þið eruð með milliveggi úr spónaplötum; gerið tilraun með að slá út rafmagni í nokkrar nætur. Svefninn verður oft betri.
Athugið að tölvur hafi jarðsamband.
Hljómflutningstæki ættu að hafa jarðsamband.
Sjónvarpstæki ættu að vera með jarðtengd loftnet. (í skerm loftnetskapals)
Þegar börnin leika sér að sjónvarpsleiktækjum ætti leiktækið að vera tengt í sjónvarpið með "T" tengi þannig að jarðtengt loftnetið sé einnig í sambandi.
Standið ekki við örbylgjuofna þegar þeir eru í gangi.
Það á sérstaklega við um börnin.
Þegar horft er á sjónvarp er skynsamlegt að halda hæfilegri fjarlægð. Tvöföld skermstærð er æskileg. T.d. er fjarlægð frá 25 tommu tæki 50 tommur og svo framvegis.
Þetta á sérstaklega við um börn.
Fyrir þá sem eru að byggja.
Milliveggir og klæðningar veggja úr spónarplötum eru algengir.
Raflagnir inn í slíkum veggjum ættu ávalt að vera úr skermuðu raflagnaefni.
Athugið að lagnir eins og hitaveitu, rafmagnsinntaks og spennujöfnunartaug milli hitaveitu og rafmagnstöflu sé ekki nálægt svefnherbergjum. Þessi leið ætti að vera eins stutt og kostur er.Fyrirtæki sem höndla með skermað raflagnaefni: