Rafmagnað líf
Enn um rafsegulóþol.
Hægt og bítandi færumst við nær sannleikanum um rafsegulóþol, orsök og afleiðingar. Við skulum hafa það hugfast að þegar talað er um rafsegulsvið er verið að tala um riðstraumsrafsegulsvið. Það þýðir að segulsviðið skiptir um stefnu oft á sekúntu. Til dæmis skiptir 5o riða bylgja (húsrafmagn) um segulpólum fimmtíu sinnum á sekúntu. Yfirleitt er talið að stöðugt segulsvið sé ekki hættulegt, t.d. seguslvið jarðar.
Per-Arne Öckerman prófessor og yfirlæknir lyflæknideildar við háskólann í Lundi ásamt professor Christer Tageson hafa fundið aðferð til að mæla skaða af völdum rafsegulsviðs hjá sjúklingum með rafsegulóþol. Mælingin byggist á greiningu á þvagi og saur. Þeir segja að greinilega megi merkja að frumur sjúklinga með rafsegulóþol skaddist, bæði himnan og DNA kjarninn. Gerðar voru tilraunir með sextán persónur sem greinst hafa með rafsegulóþol. Ljóst var að áhrif frá rafsegulsviði gætti í upp undir tíu daga eftir að viðkomandi einstaklingar voru settir í rafsegulsvið, svipað og gerist á vinnustöðum. Engin viðbrögð voru finnanleg hjá viðmiðunarhópnum. Engin skýring hefur fundist en sennilegasta kenningin er sú að um sé að ræða sinduráhrif stak-rafeinda sem valda súrefnisskort í frumunum með ofangreindum áhrifum. Við rannsóknir á sjúklingum með rafsegulóþol hefur jafnframt komið í ljós, greinileg svörun í ónæmiskerfinu gagnvart rafsegulsviði. Það hafa vaknað grunsemdir um á orsök rafsegulóþols sé hægt að rekja til eldvarnarefna í plasti. Talið er að lítið magn geti losnað úr plastinu meðan það er nýtt, eins og t.d. úr tölvum. Kassi tölvuskjáa er oftast úr plasti og rafeindakubbar eru úr epoxy sem inniheldur sviðuð efni. Hér beinast augu manna aðallega að efninu TBBA (Tetra Bromid bis-phenol A) en einnig efni eins og PBDE sem líkist mjög efninu PCB. Öll þessi efni eru baneitruð. Í líkamanum brotna þau mjög hægt niður og safnast þau upp í fituvefjum. Þessi efni hafa fundist í blóði einstaklinga með rafsegulóþol.
Rannsóknir Dr. Olle Johansson aðstoðarprófessors í Neuroscience í Karolinska Institute í Stockholmi á rafsegulóþoli, eru einnig athyglisverðar. Hann og samstarfsmenn hafa rannsakað efri lög húðarinnar í 15 einstaklingum með rafsegulóþol. Hann segir að mjög líklegt sé að rafsegulóþol sé staðreynd. Viðteknar skoðanir segja að rafsvið (ekki rafsegulsvið) nái ekki nægjanlega langt inn í húðina til að geta valdið skaða. Dr. Johansson hefur komist að því að taugaendar liggja 20 - 40 micron undir yfirborði húðarinnar sem er nær yfirborðinu en áður hefur verið talið. Þar sé hugsanlega komin leið fyrir áhrif rafgeislunar inn í líkamann.
Rafsegulsvið
Þrjár rannsóknir í Ameríkur slá því föstu að samband sé á milli rafsegulsviðs og krabbameins. EPRI í Bandaríkjunum hefur látið fara yfir 29 rannsóknir í atvinnugreinum tengdum rafmagni og hefur sú athugun leitt í ljós að samband, þó lítið sé, milli krabbameins og rafsegulsviðs. Nefna þeir að um 20% aukin hætta sé á að fá krabbamein ef rafsegulsvið sé í umhverfinu. Niðurstöður þessar voru birtar í tímaritinu Journal of Occupational and Environmental Medicin. Ekki sýndist vera beint samhengi á milli styrkleika rafsegulsviðs og tíðni krabbameina. Verið er að rannsaka í Svíþóð hvort hitakassar fyrir nýbura séu hugsanlega hættulegir. Þráfaldlega hefur komið fram svörun á barnahvítblæði og búsetu við raflínur og því ástæða til að huga nánar að umhverfi ungviðsins. Töluvert mikið rafsegulsvið mælist í hitakössum, aðalega vegna blásaramótora og rafmagnstækja tengd þeim.Örbylgjur frá farsímum.
Sífellt ber meira á umræðu um hættur af völdum farsíma. Þá er verið að tala um farsíma sem hafa loftnetið á tólinu sjálfu. Þar er helst að nefna GSM síma. Mikið hefur heyrst af kvörtunum vegna notkunar þessara síma. Þeim hefur verið kennt um vanlíðan í höfði, augum og lélegt skammtímaminni. Spurningin er: Er þetta bara vanlíðan eða er meiri hætta á ferðum en við gerum okkur grein fyrir? Rannsóknir gerðar á rottum sýna að örbylgjur geta rofið hlekki í DNA sameindum. Amerískar og Indverskar rannsóknir hafa sýnt fram á þetta. Drs. Henry Lai og Narendra Singh í háskólanum Washington, Seattle rannsökuðu áhrif örbylgna á rottur. Tilraunin fór fram með því móti að rottur voru settar örbylgjusvið á tíðnini 2,4 GHz, sem er nákvæmlega sama tíðni og flestir örbylgjuofnar hafa. Tilraunadýrið var haft í örbylgjugeisla í tvo tíma og var styrkleikinn 2mW/cm2 (tveir þúsundustu úr watti) sem er innan viðurkenndra hættumarka. (samsvarar 1,2 W/Kg SAR eða specific absorbtion rate). Niðurstaðan varð sú að þessi styrkleiki dugði til að orsaka skemmd á DNA sameind.
Önnur rannsókn var gerð af Dr. Soma Sarkar í Institute of Nuclear Medicine and Allied Sciences í New Delhi, Indlandi Hún var samhljóma fyrri rannsókninni og hafa þessir vísindamenn ályktað að breyta verði stöðlum fyrir hámarks leyfilega geislun örbylgna vegna hugsanlegrar stökkbreytinga á DNA sameindum. Slík breyting gæti haft í för með sér myndun æxlis, jafnvel illkynja. Það vekur óhug þessara vísindamanna að GSM símar gefa frá sér sterkar púlsaðar örbylgjur á tíðninni rétt undir 1 GHz. Dr. Niels Kuster hjá tæknirannsóknarstofnun Svissneska ríkisins í Zurich greindi frá rannsókn á farsímum árið 1994. Við verstu skilyrði mælir Dr. Kuster rafgleypni (SAR) 5,3 W/kg sem er töluvert meira en tilgreint hámark. Það hefur umtalsverð áhrif hvernig haldið er á símanum, hvernig loftnetið hallar og hversu fast símanum er þrýst upp að eyranu. Það er nú viðurkennt að höfuð í fullri stærð drekkur í sig upp undir helmingin af útsendri orku GSM farsíma. Ennfremur að minni höfuð eins og barna og kvenna drekka í sig meira og ganga bylgjurnar lengra inn í höfuðið. Það er rétt að geta þess að þessar rannsóknir miða við 0,6W sendiorku en farsímar á Íslandi eru með 2W sendiorku eða rúmlega þrisvar sinnum sterkari. Nýjar staðaltillögur frá EC (Europian Commission) og CENELEC segja að hámarks geislun fyrir almenning eigi að vera 0,08W/kg (SAR) Opinberar tölur frá EC samþykkja 3,4W/kg hámark fyrir GSM farsíma á 900MHz sem er 42 sinnum hærri en hinar nýju tillögur um 0,08W/kg.
Lengi hefur verið vitað að örbylgjur geti haft óæskileg áhrif á líkamann. Til dæmis er vitað að örbylgjur getur orsakað sérstaka tegund gláku. Sú kenning hefur heyrst að feður sem vinna við kröftuga örbylgjugeislun t.d. frá radar eiga meira á hættu að eiganst börn með Down Syndrom. Örbylgjur geta jafnframt eyðilagt einangrandi lag utan um taugar og orsakað veiki sem líkist Multiple Sklerosis. Önnur áhrif sem farsímar, þá sérstaklega GSM síminn, hafa eru að trufla önnur rafeindatæki. Snemma lék grunur á að farsímar trufluðu sérhæfðan rafeindabúnað sjúkrahúsa með hættulegum afleiðingum. Sögur hafa gengið um truflanir eftirlitstækja á gjörgæsludeildum og tæki eins og rafeindastýrðir hjólastólar hafa fengið sjálfstæðan vilja. Nokkrir spítalar erlendis hafa bannað notkun farsíma nálægt gjörgæsludeildum. Einnig hafa sjónvarpsstöðvar bannað þá vegna truflanahættu. Það er einnig mjög varasamt fyrir fólk með hjartagangráð að nota GSM síma því þeir geta truflað gangráðinn. Það vandamál hefur heinsvegar tekist að leysa.Það er rétt að bend á það hér, af gefnu tilefni: forðist að hafa GSM síma nálægt ungviði.Leki
Nefnd sem skipuð var til að fjalla um rannsóknir á hættum vegna rafsegulsviðs, NCRP (National Council on Radiation Protection) ku vera með skýrslu í burðarliðnum sem boðar byltingu. Í skýrslunni er mælt með miklum breytingum á stöðlum til lækkunar á raf- og rafsegulsviði í umhverfinu. Þar segir að í skólum og leikskólum barna eigi strax að setja mörkin við 200 nT (2 mG). Hús eigi ekki að byggja það nálægt háspennulínum að rafsegulsvið geti orðið hærra en 200 nT í nema hámark tvo tíma. Jafnframt að rafsvið sé ekki hærra en 10V/m. Þessar breytingar eigi að gerast á tíu árum. Nefndarformaðurinn, professor Ross Adey, á Veterans Administration Hospital í Loma Linda, Californiu lét hafa eftir sér að nú sé komnar svo kröftugar sannanir fyrir því að langtíma áhrif af rafsegulsviði á lágum styrk, geti haft áhrif á heilsuna, að ekki sé hægt að horfa fram hjá því. Það á hinsvegar eftir að koma í ljós hvort þessar tillögur verði lagðar fram opinberlega en það er víst að það hefði gríðarlegan kostnað í för með sér. Ef setja ætti svipaðar reglu hér á landi þyrfti annaðhvort að minnka leikskólalóðir og girða af húshluta eða rafmagnsveitur þyrftu að færa jarðkapla og þá má spyrja: Hvert?Það er margt í mörgu
Útreikningar á eigintíðni stálteina í brjóstarhöldum sýna að þeir geti virkað sem móttakarar fyrir tíðnisvið allt frá nokkur hundruð Hz og upp í 3 GHz. Það tíðnisvið spannar t.d. farsíma, tölvuskjái, örbylgjuofna og flestar sjónvarps og útvarpstöðvar. Anne Silk, opthalmologist hefur stundað rannsóknir á hættum af völdum rafsegulsviðs. Hún heldur því fram að þarna geti hugsanlega verið hlekkur sem skýrir fjölda krabbameina í brjósti kvenna. Rannsóknir hafa sýnt t.d. í Noregi að konur sem vinni við radíósendingar (telegrafister) eigi tvöfalt meir á hættu að fá krabbamein í brjóst en konur í öðrum starfsstéttum.
Spænskur nærfataframleiðandi “Intima Cherry³ hefur kynnt nýja tegund brjóstarhalda og nærbuxna sem er framleitt úr efni sem kallast Nega-Stat og fullyrða þeir að það efni eyði rafsegulsviði og minnki þannig streytuáhrif rafbylgna og minnki hættu á brjóstakrabba.
Skemmtilegri kenningu hefur verið varpað fram um tölvu og sjónvarpsfíkn. Hún er sú að viðvera við sjónvarp hafi áhrif á hormónaframleiðslu líkamns. Þannig séð geti myndast dauft líkamleg samband við sjónvarpskjá og jafnvel fíkn. Rannsóknir hafa beinst að morfínefnum líkamans. Ekki kemur fram hvort um er að ræða plús-jóna áhrif eða rafbylgjur. En eitt er víst, þetta gæti skýrt út hversvegna léleg sjónvarpsdagskrá fer illa í skapið á mörgum. Í stað þess að slökkva og lesa góða bók er setið við skjáinn í fýlu og bölvað.Umræðan
Erlendis er mikið rætt um áhrif rafsegulsvið og þá sérstaklega vanda þeirra sem þola illa nærveru við slík svið. Rannsóknir sem hafa verið gerðar eru misvísandi. Stundum kemur fram greinilegt samband milli t.d. barnahvítblæðis og búsetu í nágrenni við háspennulínur og stundum ekki. Hvað veldur þessari misvísun er ekki vitað. Hinsvegar eru rannsóknir misvandaðar og sýnist stundum eins og hagsmunir geti ráðið niðurstöðu. Nýlega voru birtar niðursöður finnskrar faraldsfræði-rannsóknar sem var ein umfangsmesta sinnar tegundar sem gerð hefur verið. Hún átti að sýna það í eitt skipti fyrir öll að ekkert samhengi væri milli krabbameins og búsetu í nálægð við háspennulínur. Fjölmiðlar höfðu mikin áhuga á þessu enda hafa þeir eingöngu áhuga á annari hlið þessara mála. Þegar forsendur þessarar rannsóknar eru skoðaðar kemur í ljós að tekið var mið af búsetu við háspennulínur í allt að 500 metra fjarlægð við línu. Hingað til hefur verið álitið að neðstu mörk hugsanlegrar hættu af völdum rafsegulsviðs sé um 2 mG. Í 200 metra fjarlægð frá raflínum er þeim styrkleika oftast náð og allt umfram það mundi ekki teljast áhættuhópur. Það virðist því vísvitandi verið að deyfa hugsanlega svörun við sjúkdómum á borð við hvítblæði. Þó að svörunin hafi hingað til verið dauf réttlætir það ekki að horft sé fram hjá henni. Þessi rannsókn var styrkt af tveimur raforkuframleiðendum.
Hér á landi virðist umræðunni um rafmengun vísvitandi verið haldið á lágu plani. Umræðan einkennist af fáfræði og stundum bulli sem hræðir almenning upp úr skónum. Fjölmiðlar hér virðast hafa meiri áhuga á bullinu en vitrænni umræðu. Þó brá svo við að Rafiðnaðarsamband Íslands reið á vaðið og birti merkilega grein í des. 96 hefti Rafiðnaðarblaðsins þar sem m.a. var skýrt frá efninu CD45 í frumum sem virkar eins og móttakari fyrir rafsegulsvið.
Fyrir einum þremur árum skilaði nefnd á vegum sænska rafmagnseftirlitsins skýrslu og áliti um hættur vegna tengsla búsetu við háspennulínur og barnahvítblæðis. Þeir mæltu með ákveðnum ráðstöfunum vegna þessa. Vegna áhuga míns á þessum málum, fannst mér ástæða til að taka þetta alvarlega. Hafði ég samband við ónefnt morgunblað og talaði þar við einn fréttastjórann. Ég sagði honum frá þessari skýrslu og innihaldi hennar í stórum dráttum. Hann sýndi þessu áhuga og bað um að fá að hugsa málið. Tveimur dögum seinna birtist frétt á baksíðu sama blaðs með fyrrisögninni: “Rafsegulsvið hættulaust³ þar var ekki minnst einu orði á rannsóknir heldur lapið gagnrýnislaust upp eftir forsvarsmönnum rafmagnsveitna að rafsegulsvið væri með öllu hættulaust. Púnktur basta.
Fréttir sem fólk fær af þessum málum eru í formi kjaftasagna, oftast tröllasögur og er ekki óalgengt að heyra að rafsegulsviði hafi verið eytt með því að setja upp eitthvern hlut eins og stein eða grafa víravirki í blómapott . Rétt skal vera rétt, hlutir eins og víravirki, steinar eða hvað það nú er hafa engin áhrif á rafsegulsvið eða rafsvið til eða frá. Svo er einnig með margt annað sem notað er í sama tilgangi. Það má alls ekki rugla saman rafsegulsviði, rafsviði eða radíóbylgjum við jarðfræðileg streytusvið (oftast kallað jarðárur) sem er allt annar handleggur og er, fræðilega séð á mjög gráu svæði.
Fjölmiðlar bera nokkra ábyrgð á þessu. Þeir þegja þunnu hljóði þegar það hentar ekki hagsmunaaðilum að vakin sé athygli á þessum málum. Vonandi kemst umræðan á hærra plan þannig að hægt verði að taka á þessu með skynsemi og í samráði við yfirvöld. Það er súrt fyrir fólk sem jafnvel þjáist af völdum rafmagnsáhrifa að þurfa að lifa í fáfræði. Einn kunningi minn segir oft: Það er betra að kveikja á einu kerti en að bölva myrkrinu.Valdemar Gísli Valdemarsson
höfundur er rafeindavirkjameistari
og áhugamaður um umhverfismál.
Greinin birtist í tímariti Heilsuhringsins vor '97.