Ný rannsókn sýnir neikvæð
áhrif farsíma.
Þann 15 sept. s.l. birti sænska blaðið Svenska
Dagbladet rannsóknarniðurstöður
Háskólans í Lundi á áhrifum
farsíma á heilann. Dr. Leif Salford greindi frá
því að rannsóknarhópurinn hefði
verið að rannsaka áhrif farsímageislunar
á rottur. Heilinn í rottum er mjög líkur
heila mannsins og því oft notaður við
slíkar athuganir. Rannsóknirnar leiddu í
ljós að svokallaður
blóðþröskuldur heilans (Blood Brain Barrier)
virðist verða fyrir áhrifum frá
farsímageislun. Blóðþröskuldur heilans
er mjög öflugt kerfi sem síar blóðið
áður en það fer til heilans. Það er
til að hindra að ýmiss efni komist inn í
heilann og valdi þar skaða. Efni sem þó eru
líkamanum eðlileg. Vísindamennirnir notuðu
prótínið albumin í tilrauninni. Þeir
komust að því að próteinið lak
í gegnum þetta kerfi heilans á meðan á
geislun stóð. Lekinn hélt áfram
töluvert lengi eftir að slökkt var á
geisluninni. Í tilrauninni voru rotturnar geislaðar
í 2 stundir. Tilraunir með að sprauta
örltíð meira magni af albumin beint inn í
heila dýranna olli skemmdum á heilafrumum. Ef
hreinsikerfi heilans opnast á annað borð geta
ýmiss önnur efni komist þar inn og valdið
jafnvel mun meiri skaða en albumin. Þeir óttast
að þetta geti leitt til sjúkdóma á
við MS (Multible Sclerosis) Parkinsonveiki, demens
(heilahrörnun) og Alzheimer. Það sem þykir
alvarlegast í þessu er sú staðreynd að
það er nóg að verða fyrir
farsímageislun í stutta stund, áhrifin vara
lengi. Jafnframt komu í ljós gluggáhrif,
þ.e. lágur styrkur örbylgjugeislunnar, niður
að vissu marki, hafði meiri áhrif en hár
styrkur. Þetta þýðir að jafnvel
það að standa nálægt farsímanotanda
geti verið varasamt. Áhrif voru rannsökuð
á bæði 900 MHz kerfinu og 1800MHz og voru
niðurstöður eins. Rannsókninni var
stjórnað af prófessor Bertil Persson. Telur hann og
félagar hans að brýnt sé að taka
þessar niðurstöður alvarlega. Frekari
rannsóknir eru fyrirhugaðar.
Heimilidir: Svenska Dagbladet 15.09.1999
Rafsegulsvið og hvítblæði.
Rannsóknarhópur í háskólanum
í Toronto og Hospital for Sick Children tilkynntu að
rannsóknir hefðu sýnt að börn sem
búa við há gildi rafsegulsviðs áttu
meira á hættu að fá
hvítblæði en börn sem ekki bjuggu við
slík skilyrði. Þeir gerðu mælingar
á heimahögum veikra barna og komust að
því að tvisvar til fjórum sinnum meiri
líkur væri á að börn með
hvítblæði hefðu búið við
há gildi rafsegulsviðs.
Heimildir: University of Toronto magazine (haust 1999 Vol. XXVII)
Hætta! Fjarskiptamastur!
Í blaðinu Sunday Times í maí s.l. var greint
frá því að læknar og vísindamenn
hafa vaxandi áhyggjur af heilsufari fólks sem
býr nálægt fjarskiptaturnum. Frumskoðun,
framkvæmd af prófessor Gordon Stewart sýnir
að ástæða sé til að hafa
áhyggjur af aukningu sjúkdóma eins og
hvítblæðis hjá fólki sem býr
í nágreni við slíka turna. Stewart er fyrrum
ráðgjafi hjá Alþjóða
heilbrigðismálastofnuninni. Í kring um
fjarskiptamastur í Crystal Palace, London hafa greinst 33%
fleiri tilfelli krabbameins en meðaltal segir til um að
ætti að vera.
Heimildir: Sunday Times
Segulsvið notað til að lækna
geðklofa.
Tilraunir hafa verið gerðar til að hafa áhrif
á geðklofa með kröftugu segulsviði.
Þessi meðferð er kölluð Transcranial
Magnetic Stimulation eða TMS. Meðferð virkaði
á helming sjúklinga sem heyrðu raddir.
Áhrifin vöruðu í nokkra daga. Dr. Ralph
Hoffman hjá Yale Psychiatric Institute vann við
þessar tilraunir.
Hefimildir: The Associated Press NY-05-20-99
Örbylgjur hafa áhrif á heilann
Vísindamenn hjá DERA, Defence Evaluation Reserch
Agency, Porton Down. Hefur tekist að sýna fram á
aða örbylgjur geta haft áhrif á starfsemi
ákveðins hluta heilans. Sýnt var fram á
að örbylgurnar höfðu áhrif á
taugaboðskipti í hippocampus. Að sögn Dr.
Tattershall þá gegnir þetta svæði
heilans mikilvægu hlutverki t.d. gagnvart lærdómi
og skammtímaminni en kemur einnig við sögu í
flogaveiki. Ekki er vitað hvort þessi áhrif eru
jákvæð eða neikvæð. Það sem
er mikilvægast í þessu er sú staðreynd
að styrkur örbylgna sem var notaður var mun lægri
en svo að hann gæti hitað vefinn sem tilraunin var
gerð á. Þetta þýðir, þvert
ofaní það sem svo margir vísindamenn hafa
haldið fram, að áhrif örbylgna er ekki
hitaháð. Þessi tilraun var framkvæmd með
700MHz Örbylgju en það er ekki langt frá 94 MHz
bylgjum GSM síma.
Heimild: Horizons haust 99 bls. 11