Fréttaskeyti Hér er linkur í fréttaskeyti sem send voru út um tíma.

 

Fréttir

Uppfært 20.8.1998

Rafsegulsvið hugsanlegur krabbameinsvaldur.

(ágúst '98) Þetta er stórfrétt. Vísindamenn innan samtakana: The National Institute of Environmental Health Sciences (NIEHS), National Institutes of Health (NIH), and the National Toxicology Program, DHHS, hafa samþykkt að rafsegulsvið skuli flokkað sem hugsanlegur krabbameinsvaldur gagnvart hvítblæði hjá börnum. (In brief, the panel of experts concluded that electric and magnetic fields like those surrounding electric power lines should be regarded as a "possible human carcinogen.") Flokkunin hefur heitið 2B. Þetta er mikil viðurkenning á störfum þeirra fjölmorgu vísindamanna sem hafa komist að þessari niðurstöðu í rannsóknum sínum. Faraldsfræðirannsóknirnar sem styðja þetta eru fjölmargar. Yfirvöld flagga venjulega þeim rannsóknum sem sýna lítið sem ekkert samhengi en um hinar rannsóknirnar ríkir dauðaþögn. Það sama á við um þessa frétt; dauðaþögn. Það er hvergi minnst á þetta í fjölmiðlum hér á landi. Þótt líkurnar á hvítblæði hjá börnum og viðveru í rafsegulsviði virðist ekki sterkar verður að hafa það í huga að orsakasamhengið er ekki þekkt. Einnig verðu að athuga það að rafsegulsvið í umhverfi okkar er orðið svo víða að viðmiðunarhópar í faraldsfræðirannsóknum eru aldrei alveg lausir við rafsegulsvið. Meira að segja gæti það verið sterkara hjá viðmiðunarhópnum vegna þess að rannsóknir hafa miðað við búsetu í nágreni við háspennulínur en ekki raun-rafsegulsvið. Flökkustraumar geta verið hvar sem er. Dekk á bílum getur myndað rafsegulsvið, háspennukefli bíla, sjónvörp, tölvur og svo mætti lengi telja. Nánari upplýsingar eru að finna á internetsíðunni: www.niehs.nih.gov/emfrapid/home.htm.

Á meðan vísindamenn leysa gátuna miklu getum við hin bara viðhaft "skynsamlega varúð".

 

Skýrsla EPA ekki birt.

Rafsegulsvið frá orkuveitu ætti að skoðast sem krabbameinsvaldur hjá börnum sögðu þeir hjá Environmental Protection Agency (EPA) árið 1994. EPA samdi skýrslu sem aldrei var birt vegna skipanna æðstu stjórnar félagsins. Tímaritið Microwave News hefur þessa skýrslu undir höndum og birtir hana í nýjasta hefti sínu. Vinna við skýrsluna var stöðvuð árið 1995 og hefur legið niðri síðan. Þeir segja það fullum fetum að vegna fjölda rannsókna sem sýni samhengi milli búsetu í nálægð við háspennulínur og hvítblæðistilfella og heilaæxla hjá börnum þá skuli rafsegulsvið skilgreint sem krabbameinsvaldur.

 

Nýjar rannsóknir sýna aukna h ættu á fósturláti vegna viðveru í rafsegulsviði.

Ef konur nota rafmagnshitateppi á meðgöngutíma auka þær líkurnar á að missa fóstur segir Dr. Kathleen Belanger og fél. hjá Yale Háskólanum í New Haven, CT. Rannsóknin var birt í Epidemiology 9,pp.36-42 og voru rannsakaðar 2967 konur sem höfðu planað barneignir á árunum 1988 til 1991. Konur sem notuðu rafmagnshitateppi á meðgöngu voru líklegri til að missa fóstur í margfeldinu *1,84. Ekki fannst samsvörun við búsetu í nágreni við háspennulínur né gagnvart notkun vatnsrúma. Líkurnar á fósturláti jukust eftir aukinni notkun og hærri hitastillingu á teppunum (hærra rafsegulsvið). Nokkrir annmarkar voru á þessari rannsókn og því er hún ekki talin hafa mikið gildi. Hinsvegar rifjar blaðamaður MN upp eldra mál sem er mjög athyglisvert. Dr. Jukka Juutilainen Háskólanum í Kuopio fann með faralsdsfræðirannsóknum árið 1992 að búseta við hærri gildi rafsegulsviðs allt að fimmfaldaði hættuna á fósturláti. Mismunur niðurstaða þessara tveggja rannsókna er dálítið mikill og hefur Dr. Nancy Wertheimer frá Boulder CO (Wertheimer & Leeper) látið hafa eftir sér að skýringin geti legið í því að Yale Háskóli ransakaði eingöngur konur frá 17 viku meðgöngu en tímabilið fram að því telur hún mun líklegra til að vera hættutíma gagnvart rafsegulsviði. Í upphafi tölvuvæðingar kom fram grunur um að konur sem unnu við tölvuskjái gætu átt meir á hættu að missa fóstur en konur sem ekki unnu við tölvur. Faraldsfræðirannsóknir sem gerðar voru á þeim tíma sýndu þetta glöggt. Hinsvegar fóru skjáframleiðendur af stað og gerðu sambærilegar rannsóknir sem sýndu akkúrat enga svörun. Málinu var þvælt aftur og fram í mörg ár. Á meðan unnu skjáframleiðendur að því að lækka rafsegulsvið frá skjám og eftir því sem tíminn leið minnkaði svörun rannsókna og á endanum var talið að skjáir hefðu ekki áhrif til aukinnar tíðni fósturláta. Rannsókn Yale Háskóla og Kuopio Háskóla sýna að ekki eru öll kurl komin til grafar.

Lágstyrks-rafsegulsvið getur lækkað næturmelatonin í hjá konum.

Ný rannsókn, stjórnað af Dr. Scott Davis hjá Fred Hutchinson Cancer Research Center í Seatle, sýnir að lágur styrkur rafsegulsviðs getur lækkað magn (nocturnal release) næturmelatonins (Nocturnal melatonin) hjá konum. Styrkur þess rafsegulsviðs sem notaður var er það sem þeir kalla "real world condition" eða sambærilegt því sem getur komið upp eða verið til staðar á venjulegum heimilum. Mest mældis minnkunin hjá konum sem fyrir voru á lyfjum er lækkuðu melatonin. "Þetta er mjög áreytin niðurstaða" sagði Dr. David Blast hjá Mary Imogene Bassett Hospital Research Institute í Cooperstown, NY en hann hefur rannsakað melatonin í fjölda ára. Samstarfsmaður Davids Dr. Richard Stevens kom með þá kenningu fyrir tíu árum að aukin rafmagnsnotkun ætti að hluta til sök á hækkaðri tíðni brjóstakrabbameins. Dr. Maria Feychting, Karolinska Institute, framkvæmdi rannsókn sem sýndi að konur undir fimmtugsaldir sem búa við rafsegulsvið að styrkleika 2mG eða hærra ættu 80% meir á hættu að fá krabbamein í brjóst en konur sem búa við 1mG rafsegulsviðsstyrk. Þegar einangruð voru tilfelli þar sem konur voru estrogen-receptor-pósitívar (ER+) jókst hættan á krabbameini í brjósti í margfeldið 7,4 (relative risk) hjá konum þar sem rafsegulsvið var hærra að styrk en 1mG.

Rafsegulsvið truflar svefn.

Vísindamenn við "Statens institut för psykosocial miljömedicin" í Svíaríki fengu 18 heilbrigða einstaklinga til að taka þátt í könnun á áhrifum rafsegulsviðs á svefn. Rannsóknin var tvíblind og fór fram í skátabúðum þar sem ekki var rafmagn. Það var gert til að umhverfisrafsegulsvið truflaði ekki og hefði áhrif á niðurstöður. Fyrir utan svefnálmuna var komið fyrir rafsegulsviðsgjafa sem sem gat myndað 1 míkróTesla rafsegulsvið (10mG). Prófessor Torbjörn Ákerstedt, sem stjórnaði rannsókninni, sagði að greinilegt væri að rafsegulsviðið hefði þau áhrif að svefntruflanir kæmu fram og djúpi svefninn, sem væri okkur mjög mikilvægur, styttist. Torbjörn Ákerstedt segir þetta hugsanlega geta útskýrt hversvegna margir tölvunotendur kvarta undan þreytu og þá sérstaklega rafsegulóþolssjúklingar. Rannsóknum verður haldið áfram til að kortleggja nánar samspil segulstyrks og svefntruflanna.
Ljusglimten 3/?97 TCO-tidningen 17-´97)

 

Rafsegulsvið truflar virkni krabbameinslyfja.

Dr. Róbert Liburdy, hjá Lawrence Berkeley Laboratories, Háskólanum Californíu uppgötvuðu að rafsegulsvið af styrkleika milli 6mG og 12mG hefði áhrif á virkni melatonins gegn krabbameini. Eins og kunnugt er vinnur hormónið melatonin gegn mörgum tegundum krabbameins. Áður var vitað að rafsegulsvið hefði áhrif á framleiðslu heilans á þessu hormóni en þessi niðurstaða kom á óvart vegna þess hversu lágan styrk þurfti til að trufla virknina. Þessi rannsókn hefur verið endurtekin í fjórgang og virðist ljóst að virkni melatonins gegn krabbameinsfrumum, ræktuðum úr brjóstakrabbafrumum (MCF-7), minnka og hverfa loks alveg eftir vissan tíma í 12mG rafsegulsviði af tíðninni 60 rið. Frumrannsóknir benda til að styrkur undir 12mG hafi einnig áhrif. Það sem meira er; rafsegulsvið hefur sömu áhrif á virkni lyfsins Tamoxýfens, (hér á landi er það kallað Nolvadex) en það er krabbameinslyf notað gegn brjóstakrabba. Þetta þýðir að krabbameinsfrumur, a.m.k. í ræktun, fjölga sér óheft séu þær í rafsegulsviði. Þessar rannsóknir á eftir að skoða betur en þýðing þeirra má vera hverjum hugsandi manni ljósar. Þeir sem ekki eru kunnugir melatonin er bent á að lesa greinar Ævars Jóhannessonar um melatonin í haust hefti Heilsuhringsin ´96 og vor ´97.

Nýjar rannsóknir á Alzheimer!

Sænsk faraldsfræði-rannsókn framkvæmd af Mariu Feychting á Karolinska Institut, er samhljóma öðrum faraldsfræði-rannsóknum um samband milli sjúkdómsins Alzheimer og viðveru í rafsegulsviði. Einstaklingar sem hafa hærra en 2 microTesla rafsegulsvið á vinnustað eiga 2,5 sinnum meira á hættu að fá alzheimer síðar á ævinni en aðrir. Rannsóknin miðaðist við vinnustaði eins og t.d. saumstofur, sjónvarpsstöðvar og orkuver. Eugene Sobel, sem stýrði amerísku rannsókninni, leggur til að skoðuð verði nánar áhrif rafsegulsviðs á fólk á saumastofum. Þar leggur hann til, að rannsakað verði magn efna eins og prótínsins amyloid beta, í starfsmönnum, fyrir og eftir vinnu. Vitað er að rafsegulsvið hefur áhrif á kalsíum-jónir fruma. Sobel telur að þesskonar truflun hafi áhrif til aukningar á amyloid beta prótínið sem valdi keðjuverkandi truflun á starfsemi heilans sem að endingu leiðir til sjúkdómsins Alzheimer.
Ljusglimten 2/?97)

 

Rafsegulsvið hefur áhrif á sársaukaþröskuld!

Nýleg rannsókn í Háskólanum í Písa á Ítalíu, hefur leitt í ljós furðulegt samhengi milli viðveru í daufu rafsegulsviði og sársaukaskyns. Prófessor Floriano Papi hefur gert rannsóknir á mönnum og dýrum sem sýna þetta. Rannsóknin á mönnum var tvíblind og voru þáttakendur samtals 18. Niðurstaðan sýndi að eftir tveggja tíma viðveru í rafsegulsviði hafði sársaukaþröskuldurinn lækkað. Notuð voru dauf rafboð sem áreyti, með visst hækkandi styrk. Professor Papi er varkár í túlkun sinni á þessum niðurstöðum og telur frekari rannsókna þörf. Olle Johansson hjá Karolinska institutet telur þessar niðurstöður geysilega þýðingarmiklar í rannsóknum á líf-fræðilegum áhrifum rafmengunar.
(TCO fréttir 6/97 & Ljusglimten 2/?97)

 

Er rafsegulsvið orsök krabbameins í eistum?

Ný sænsk rannsókn þykir benda til þess að samband sé á milli rafsegulsviðs og krabbameins í eistum. Rannsóknin var gerð af sænska Vinnueftirlitinu, Birgittu Flodérus. Rannsóknin er faraldsfræðileg og áhættuhópurinn er karlmenn undir 40 ára. Carin Stenlund yfirfór niðurstöður og segir að greinilegt samhengi sé milli eistnakrabba hjá mönnum sem vinna með hærri gildi rafsegulsviðs. Hins vegar finnist ekki samhengi milli brjóstakrabba í karlmönnum og vinnu í rafsegulumhverfi, enda mjög sjaldgæfur sjúkdómur. Full snemmt þykir að draga stórar ályktanir af þessari rannsókn, en er hvati til að skoða þetta betur.
(Ljusglimten 2/?97)

 

Örbylgjur skaða DNA sameindir

Nýleg rannsókn framkvæmd af Drs. Henry Lai og Narendra Singh í háskólanum Washington, Seattle sýndu fram á að örbylgjur geta skaðað DNA sameindir. Rannsóknin var gerð á rottum og fór fram með því móti að rottur voru hafðar í örbylgjusviði í tvo tíma og var styrkleikinn 2mW/cm2 (1,2 W/Kg SAR) sem er innan viðurkenndra hættumarka og lægri styrkur en GSM farsímar geta gefið frá sér. Niðurstaðan varð sú að þessi styrkleiki dugði til að skemma DNA sameindir í heila dýranna. Tilraunin var einnig framkvæmd með 4 tíma geislun og jukust skemmdir í DNA sameindum um 20%. Þessar skemmdir getur fruman oft lagfært en slíkar viðgerðir takast ekki alltaf. Þessi rannsókn var birt undir nafninu „Acute low-intensity microwave exposure increases DNA single-strand breaks in rat brain cells',“
(Bioelectromagnetics 1995; 16:207-210)

Rannsóknir Repacholis

Fyrir tveimur árum var hópur vísindamanna styrktur af fyrirtækinu Telstra í Ástralíu til að rannsaka hugsanleg áhrif farsíma á heilsufar. Þeir notuðu 200 mýs sem var skipt í tvo hópa. Annar hópurinn var geislaður í hálftíma á dag með útvarpsbylgjum af sömu tíðni, styrk og gerð og GSM símar gefa frá sér. Hinn helmingurinn var ekki geislaður. Þetta var svokölluð tvíblind rannsókn og hefur verið viðurkennd sem mjög áreðanleg og vel framkvæmd. Rannsóknin fór fram á Royal Adelaide Hospital og var stjórnað af Dr. Michael Repacoholi ásamt Professor Tony Baster, og Dr. Alan Harris. Eftir 18 mánuið voru mýsnar teknar og rannsakaðar nákvæmlega. Niðurstöður voru sláandi. Þær mýs sem höfðu verið geislaðar höfðu tvöfalt meiri myndun á krabbameinsæxlum en hinn hópurinn sem var ekki geislaður. Fjarlægð loftnetana frá músunum var ekki sambærileg við fjærlægð farsímaloftnets við höfuð notanda við notkun á farsíma. Það er talið að styrkurinn, við höfuð manns geti orðið allt að fjórum sinnum meiri en Alasdair Philips hjá Powerwatch heldur því fram að geislun á notanda farsíma sé allt að þrjátíuföld sú geislun sem mýsnar urðu fyrir. Það er gaman að geta þess að tímaritin, Nature, Science og Lancet neituðu að birta þessar niðurstöður vegna ótta um að það ylli skelfingu.
Electromagnetic Hazard & Therapy (vol. 8 No.1 1997)