Áhugaverðar rannsóknir á jarðgeislum (Geopathic Stress)
Fyrirtækið GS Solver sem rekið er af þeim Bryndísi Pétursdóttur og Garðari Héðinssyni er að vinna merkilegt starf á mælingum jarðgeisla. Bryndís hefur farið víða og mælt jarðgeisla sem oft er kallað streitusvæði og hafa mælingar hennar reynst mjög athyglisverðar. Til dæmis er samsvörun á hennar mælingum og jarðkortum jarðvísindamanna á sprungum í jörðu. Hún hefur uppgötvað að oft er fylgni á milli streitusvæða og slíkra sprungna og tekist að þróa mótvægisbúnað sem hún kallar "Mótvægiskubb". Kubburinn gerir það að verkum að neikvæð áhrif jargeisla hverfa á stóru svæði. Tilraunir í fjárhúsum og fjósum hafa sýnd undraverðan árangur og dýrin gera sér ekki upp bætta líðan. Áhrifin lýsa sér í bættri heilsu kúa, mun lægri frumutalningu í mjólk, dýrin eru rólegri og þrífast betur. Sauðfé lætur síður fang og er mun rólegra. Hjá mannfólkinu hefur komið í ljós að rykmyndun í híbýlum minnkar verulega, húsnæði er síður kallt, bætt loftræsting og bætt heilsa íbúa. Jafnframt hefur Bryndís skoðað streitusvæði á þjóðvegum landsins og telur hún sig hafa fundið skýra samsvörun á legu streitusvæða og tíðra óhappa í umferðinni. Jarðfræðileg streitusvæði hafa víða um heim verið orðuð við hærri slysatíðni í umferðinni og slæma heilsu íbúa en nægir að benda á aðrar greinar á þessum vef til skýringar. Jarðgeislar eru ekki viðurkenndir af akademiskum vísindum vegna þess að ekki hefur tekist að sanna tilvist þessa fyrirbæris. Jarðvísindamenn hafa þó bent á það að e.t.v sé ekki holt að hafa bústað beint yfir sprungu. Jarðgeislum er títt ruglað saman við rafsegulmengun en enginn fótur er fyrir því. Þess má geta að jarðgeislar voru mældir og skilgreindir á riti fyrir nokkur hundruðum ára og árið 1916 lagði maður að nafni Gustav Von Paul fram kort af byggðinni Vilsbiburg og kenningu þess efnis að ef jarðgeisli lægi undir híbýli og sérílagi rúmstæði þá væri það ávísun á krabbamein. Nánari upplýsingar um GS-solver eru hér.
Grein um streitusvæði en þar sem orkulínur eru þar myndast streitusvæði..
VGV