-Þetta viðtal tóku þeir félagar Grímur og Erpur við okkur í æfingarhúsnæði okkar stuttu eftir Pönk´98. Það birtist í fyrsta tölublaði Testamentisins, árið 1998.

Þessi mynd birtist einnig í Testamentinu.
"Ofurswanksveitin Örkuml hefur farið sigurför um rassa heimsins. Hljómsveitin er þéttskipuð líkt og salir Hafnarkrárinnar. Friðrik syngur og leikur listir sínar ýmist á bassa eða orgel. Friðrik er nú steddur í Brunschweig þar se hann leggur stund á klámheimspeki. Gunnar Sigurðsson fer handahlaupum á gítarháls auk þess að hafa unnið hvað ötulast að komu gítarleikara Metallica til landsins sem eiga að leika á næstu plötu sveitarinnar. Magnús Óskar Hafsteinsson, betur þekktur sem Mister Maggó í undirheimum borgarinnar, hefur afskipti af trommu, söng og orgelforða sveitarinnar. Ólafur Guðsteinn Kristjánsson (a.ká.a. "Karlinn") syngur og semur texta af almennt þekkist meðal íslenskra hjómsveita. Einnig er um barmafulla fýsu sem gestaleikurum og hjálparmönnum svo ekki sé minnst á grúppíur sem fylgja sveitinni eftir hvert fótmál. Fyrir utan æðislegar plötur sveitarinnar, "Litli ræfillinn frá vík" og "Edrú og elskaðir" liggja ýmis hliðarverkefni s.s. klámkenndur sólóferil Mister Maggó "bokkan" (snælda) og "Gullbokkan". Þetta er ýmist gefið út undir fána "Örkuml-útgáfunnar" eða "PVF".
Ríða núna!
Erpur: Heyrðu ég var að frétta að ykkur þætti gaman að ríða?
Magnús Háaleitisbraut: Jaa það fór viss hluti af því til Þýskalands. Það var aðallega hann Friðrik.
Óli: það var aðallega hann.
M: Honum þótti mjög gaman að ríða. okkur þykir dvona í meðallagi gaman að ríða.
E: Hvað er hann að gera í Þýskalandi?
Ó: Ætli hann sé ekki bara að ríða.
E: Hey já .... ríða.
Ó: Hann er í námi, hann er að læra eitthvað heimspekiklám.
M: Hann er í námi og að ríða.
Pönkstórveldi í fæðingu- ÖRKUMLÚTGÁFAN.......
E: Hvað er það sem ræður því að þið eruð í tónlist, strákar?
Ó: Fyrst og fremst að skemmta okkur sjálfum og ef að við skemmtum einhverjum öðrum þá er það plús.
E: Eruð þið byrjaðir að sjá einhvern pening, nú gáfuð þið út plötusem seldist í 300 eintökum er það ekki?
Ó: Ætli við höfum ekki tapað jafnmiklu og við eyddum í útgáfuna.
M: Það eru ekki alveg 300 eintök, það voru svona 150-40.
E: Eigið þið þá eithvað um 150 eintök á lager?
Ó: Þetta er eitthvað í búðum, útvöldum, Vídeósafnaranum og svona.
-[Innskot mitt:Ó.G:Reyndar eru bara eftir núna eitthvað um 40 eintök að ég held. Kannski minna]
E: Ætlið þið að senda efni til einhverja útlenskra fyrirtækja? Ætlið þið kannski að þýða textana ykkar yfir á finnsku?
M: Jú það var eitthvað finskt fyrirtæki komið með þetta.
Ó: En það var ekkert af okkar hálfu. Nei við stefnum ekkert að því neitt.
Nýr diskur- meira klám.
Grímur: Er það bara diskur, ekki plata?
Ó: Það varður sennilega bara á disk.
G: Það verður ekki pönk.
M: Það er erfitt að gefa þetta út á vínyl, það er hætt að selja plötuspilara er það ekki?
E: Jú það er búið að takmarka það mjög mikið.
M: Þegar einn aðili í þjóðfélaginu dregur bara vínyl út ú verslunum sínum þá er náttúrulega 70% (Jón Ólafsson, innskot Óla) farið.
E: En segið mér annað strákar, ég var að frétta að Jón Ólafsson hefði reynt að drepa ykkur. Reynt að keyra á ykkur.
Ó: Það er alveg satt, það er alveg rétt.
M: Það var ég sem varð fyrir barðinu á honum. Hann var dulbúinn sem leigubílsstjóri.
E: Andskotinn.
HALIM AL?.....PÖNK?
G: Nú er pönk frekar vítt hugtak hvaða merkingu leggið þið í "pönk"?
Ó: Ætli það sé ekki bara að vera frjáls, gera það sem maður vill gera, og við erum náttúrulega að því með því að halda þessa hátíð (pönk´98). Í rauninni er nafnið hálfpartinn grín, ena skiptir nafnið ekki máli, það er innihaldið.
E: Finnst ykkur Halim Al vera pönk?
Ó: Ætli hann sé ekki nær því að vera fasisti.
M: Hann er hann sjálfur.
E: Akkúrat. En Helgi Hós, hann er pönk? Það hafa meira að segja verið samin um hann pönklög.
Ó: Hann er góður, ég fíla hann. Ég las viðtal við hann. Hann er frábær, ég styð hann.
E: Hann er sexý líka.
M: Alltaf að ríða.
G: Hann hlustar örugglega ekkert á pönk þannig séð.....
Ó: Hann er náttúrulega að gera að fyrst og fremst það sem honum langar til að gera . Hann lætur ekkert vaða oní sig, berst fyrir sínum rétti.
M: Já,já. Það er sjálfsagt Halim Al að gera líka, þetta eru hans skoðanir.
E: Hann er náttúrulega hálfviti samt.
EDRÚ OG ELSKAÐIR........ha?
G: Á 7 tommunni ykkar , "Edrú og Elskaðir", þá eruð þið eitthvað að deila á Ólaf Ragnar er það ekki?
E: Er það ádeila, það er spurningin?
Ó: Ég upplifi þetta ekki sem ádeilu á Ólaf Ragnar sem slíkan heldur stjórnkerfið sem heild. Lagið snýst um það að við fáum engu að ráða en þeir geta babblað eins og þeir vilja, en ég meina erum við alltaf sammála um það allt? Það hefðu getað verið brot úr ýmsum ræðum. Grumhugmyndin var sú að reyna að finna ræðu frá 1949 þegar við gengum inn í NATO. Við fengum það ekki svo að við urðum að sætta okkur við að hafa Ólaf Ragnar.
Ég var búinn að fá alveg nóg, svo ég náði í kaðalinn og batt hana, og það var aldeilis ég, og mér leið helvíti vel (Lagið Þrengsli af "Edrú og elskaðir")
E: Svo bregður fyrir á þessari sömu plötu, einhverjum sadómasókískum tilhneygingum. Hver er hugmyndin á bakvið það?
Ó: Getur það ekki bara snúist í andhverfu sína?
G: Eru þetta einhverjar kenndir sem leynast innra með ykkur?
M: Ég man ekki alveg hvernig þessi texti er. Var einhver bundinn?
Ó: Menn segja ekki við Megas að hann hafi verið að taka litla sæta stráka þótt hann hafi sungið:"-litlir sætir strákar eru langtum betra val". Jú hann var reyndar ásakaður um það en ég efast um hann hafi gert það.
E: Mér finnst þetta ekkert mál strákar, vegna þess að þetta er kynhneigð, sjáið til, að binda einhvern niður getur verið kynhneigð. Náttúrulega ef hún /hann er ekki til í það þá er þetta ekkert fyndið.
G: Já en samt......
M: Já en sko, "batt hana" getur þýtt ansi mikið. Það er margt í mörgu.
TOPP 5 í sjálfsaflífgun.
G: Fylgir ekki svolítið þunglyndi pönkinu?
Ó: Þvert á móti.
G: Blæs ekki allt á móti ykkur?
M: Nei,nei.
E: Eruð þið ekki leiðinlegir frekar?
Ó: Við finnum okkur allt til foráttu, gefum skít í allt og alla.
E: Merkilegasta pönk sem maður heyrir oft á tíðum, það er frá Finnlandi og Íslandi, við erum að tala um alveg abstrakt þunglynd lönd, við erum það hátt hérna uppi, norðanlega, kalt, dimmt og leiðinlegt. Finnar og Íslendingar hafa oft skipt á milli sín heimsmetinu í sjálfsaflífgun, allavega trónað á topp 5.
G: Hafið þið séð "Með allt á hreinu" er það ekki, af hverju prófið þið ekki að legja rútu og.....
Ó: Finna kvennapönksveit, eigum við að taka Á Túr með?
E: Já hvernig væri það?
G: Spila á Þorrablótum, svo verður Maggi að hætta að tromma til að fá fólk út á gólfið.
Ó: Og risahumarbúning.
E: Hafð þið séð dvergaklámmynd sem heitir Buscow?
M: Nei."
-Testamentið er hætt að koma út í bili. Við í Örkuml þökkum þeim fyrir gott blað, og þarft innlegg í hina pólitísku umræðu, sem er oft á tíðum ekki á háu plani.