Pönklagið.
Lífið mitt líður hjá
lánlaus ég horfi á
lífið fljóta framhjá mér
finnst eins og vera ber.
Grámygla fólks mitt gamanmál
það gefur mér betra líf
að horfa á þeirra sorgarskál
sú er mín varnarhlíf.
(Viðlag)Allt stefnir þetta eina leið og sú leið er miður greið
allt vill í vaskinn fara, á vergum heimi ber að varast.
Takmarkaður tilgangur
tækifærin fá
heljar hugarangur
því veröldin er flá.
Horfi á allt líða burt
alltaf greið sú braut
hugur minn sem visinn urt
vandsöm er sú þraut.
(Viðlag).
Ég vill upplifa mínar langanir
losa um þennan hnút
gera það sem í brjósti býr
lát´allt brjótast út.
En heljarmikið hindrar það
heftir þessa miklu för
en helst er að hugur minn
hindri að ýtt sé úr vör.
Fisklund.
Á vestfjörðum eru hjón
þau rífast um þjóðareignstonn
hún vill fá helminginn
og losa sig við eiginmaninn.
Hvað ætli hafi klikkað
í þessum kvótaástarleik
fullnægði kannski fiskurinn
ekki þörfum hennar meir.
(Viðlag).Fiskur, fiskur segðu mér hver á landi bestur er
fiskur, fiskur segðu mér hver fær næst hausinn á þér.
Á suðurlandi er lítið þorp
þar er lundi og montið fólk
þeir eiga kvóta og veiða fisk
sem þjóðinn kaupir dýran á disk.
Gefum þeim sjálfstæði
með sendiráð á Íslandi
ef fiskarnir hefðu vit
þá færu þeir úr landhelgi.
(Viðlag).
Já sjómannslífið það er ekkert grín (x4).
Ríkishótel.
Maður myrtur
enginn kemur
hundur drepinn
mikil blysför
Maður stelur
borgar með svefni
þjóðin geldur
greiðir með skatti
(Viðlag).
Ríkishótel og þægindi
færð þú fyrir ofbeldi
matur rúm og ölmusa
klapp á bakið, ekki aftur.
Maður nauðgar
konan þegir
maður dílar
ungar deyja.
Maður laminn
allir horfa á
blóðið renna
engin hjálpar.
Pabbalagið.
1.Þau hittust full á laugardag
svo varð hún ólétt á sunnudag
hann átti að koma á mánudag
en mundi það á þriðjudag
hún átti barn á miðvikudag
hann fattaði það á fimmtudag
hann yfir því gladdist á föstudag
og hitti það á laugardag
hún henti honum út á sunnudag
hann kom svo aftur á mánudag
hann henti þeim út á þriðjudag
en drakk það frá sér á miðvikudag.
(Viðlag)Hann er Íslendingur
stoltur Íslendingur
sannur Íslendingur.
(Viðlag).
Reynslan hefur sýnt það
að betra er að setja upp smokkana
þá þarf ekki að greiða greiðslurnar
fyrir blessuðu krakkana.
Ölóður.
Þegar maðurinn mjöðinn skóp
mikið það nú á hann tók
upp rak hann þá heljaróp
og hefur síðan verið í drykkjumók.
Flestum finnst ölið eðaldrykkur
en öðrum að hafi verið gerður grikkur
að hann hafi ekki beðið þess bætur
er ölið kom og festi rætur.
Ungfrú lundapysja.
Ég hitti hana í heimaey
hún var sprangandi í kaðlinum
það sást undir pilsfaldinn
þá strax varð ég ástfanginn
meðan Árni Johnsen gaulaði
ég veit þú kemur í kvöld til mín.
(Viðlag) Geysir gaus í heimaey.
Flugeldum var skotið upp
ég fór holu í höggi
Logar voru heitir þá
núna er það Örkuml
svona komst þú Siggi minn
og svona kemur sonur þinn.
(Viðlag).
Verð að fá meira.
Flaskan mín er tóm
ég verð að fá meira
redda mér flösku
já það er sko fjör
tippið mitt er gratt
ég verð að fá meira
redda mér kellu
og stinga í torfu.
(Viðlag) Því að þetta er hamingja. Íslands mesta ánægja
Reynum því að fullnægja ungdómnum þeim saklausa.