Doktor Bjössi bóndi
Bjössi fer létt á lífið
og lítur stelpur á
út sleppur strax dýrið
stúlkur nú er vá .
Bjössi mikil maður er
meðalveginn ekki fer
er sæta stelpu sér
stuttu seinna er hún ber.
(Viðlag)
Doktor Bjössi bóndi minn
brjálaði kall
taktu nú þétt um delan þinn
því nú verður svall.
Kynvís gella kemur að
og kyrrsest hjá honum
heljarhátt hann fer stað
hann fer vel með konum.
Bjössi stóran sopa tekur
svelgist því ekki á
á dansgólfinu dýrðina skekur
djöfullinn sjáiði vá.
(Viðlag)
Groddinn
Já eruð þið öll í stuði
viljiði hætta þessu tuði
hjá mér er komið rokk og ról
þið megið alveg kalla mig fól
gæskan viltu vera með mér
ég er sá besti það hver maður sér
jæja þú vilt mig ekki fá
þá verð ég þig að slá
heyriði réttið mér búsið mitt
nei er það búið þá drekk ég þitt
fíflin ykkar hér er ekkert stuð að fá
nú rústa ég staðnum viljiði sjá.
(Viðlag) jájájájá ég er groddi (x2)
hjá mér er sko alltaf stuð (x2)
jájájájá ég er groddi
hjá mér er sko alltaf stuð.
Næst ætla ég að þamba vodka sopan
þýðir ekki stöðugt að teygja lopan
því ég ætla að verða blindfullur
og lemja nokkrar knattspyrnubullur
því næst ætla ég að ná mér í kellu
ef ekkert gengur upp þá ég mér mellu
svo nú hefst mín kvennaleit
þótt hún endi út í sveit
því ég ætla að ná mér í kellu eina
ekki væri verra að fá´ana hreina
svo ég náði mér í eina sem vildi vera með
nú með klamidíu kominn er.
(Viðlag)
Forn frægð
Það er ekki sjón að sjá mig ég sem var svo fagur
en nú er ég svo ljótur að allra vænkast hagur
eitt sinn allar stelpur þær allar vildu mig
en nú er ég birtist þær allar skíta á sig
áður fyrr ég kunni allra hjörtu kvenna að bræða
en nú eru gjörðir mínar allra manna mæða
einhver þarf að hugga mig ég er gráti næst
ef finna myndi góða gellu á það gæti sæst.
Eitt sinn á skemmtunum ég var hrókur alls fagnaðar
svo mikil skemmtun að það leiddi til hagnaðar
þá allt í einu urðu allir vinir mínir
síðan kom dópið með allar sínar sýnir
eftir það fór að halla undan fæti hjá mér
ég varð eitt allsherjar helvítis drykkjuker
þannig að nú er ég alveg búinn að vera
enginn vill mig lengur fyrir engan er ég fengur.
Haturshugur
Ég er gamall og ljótur einmanna þrjótur
enginn vill neitt með mig hafa
öllum er alveg, alveg sama
því er ég einn í mínum hugarheimi
heldur margar hugsanir þar á sveimi
í huga mér eitri sáðar
þar margar orrustur eru háðar.
(Viðlög 1 & 2) Hatur huga minn tryllir
heift og reiði sál mína fyllir
hatur er það sem líf mitt leiðir
löngun í að deyða hjarta mitt seiðir
því óska ég ykkur djöfullegum dauða
að drepa alla ykkur leiðinda kauða.
2-Kallinn hatar allt
það segi ég nú alveg satt
þó ég viti ekki ástæðuna
þá vill ég ekki vita hana
það gæti þó verið ellinn
sem að færi svo illa með kallinn
að lokum dragi hann til dauða
og sendi hann svo beint til djöfla.
Og sama hvar mig í heiminn ber
allt, allt fólkið það burtu fer
því hef ég engan nema sjálfan mig
allir eru bara að hugsa um sig
því er ég orðinn mjög svo gramur
ég mun aldrei aftur verða samur.
(Viðlög 1 & 2)
Þó enginn vilji sjá mig
vilja allir stjórna mér.
Til helvítis með allt nú fer sem fer
því nú er mitt höfuð að springa
um dauða ykkar vill ég syngja.
(Viðlög 1 & 2)
Restin af textunum kemur síðar.