greinponk98.jpg (121905 bytes)

 

(Þar sem erfitt hefur reynst að ná því sem stendur í greininni, höfum við brugðið á það ráð að skrifa það er stendur í henni hér fyrir neðan. Höfundur þessarar greinar var Árni Mattíasson).

-Pönkhátíðin hefur verið haldin í Norðurkjallara Menntaskólans í Hamrahlíð í upphafi hvers árs undanfarið. Svo verður og að þesssu sinni, því fyrirhuguð er hátíðin Pönk 98 23. janúar næstkomandi.

Umsjónarmenn Pönks 98 eru liðsmenn Örkumla, sem er í hópi þeirra sveita sem halda pönkinu á lofti og segja að framundan sé "áframhaldandi stuð og gleði". Tónleikarnir hefjast um níuleytið og standa til eitt, en fram koma tíu hljómsveitir; Saktmóðigur, Örkuml, Kuml og Forgarður helvítis, en einnig hafa boðað komu sína Kúkur og Roð. Aðrar sveitir eru óráðnar.

Þeir Örkumlsmenn segjast muni kynna ný lög sem verði á væntanlegri breiðskífu þeirra, Saktmóðigur leiki væntanlega ný lög og vísast verði eitthvað nýtt á ferðinni hjá flestum sveitanna. Þeir félagar segja að pönkið lifi góðu lífi sem tónlistarform, en hugsjónin sé komin að fótum fram."Það er erfit að lifa sem anarkískur pönkari í nútíma þjóðfélagi, en tónlistin lifir og mun lifa. [Þarna er verið að meina að pólitíkin sem var oftast nær fylgifiskur pönksins sé eitthvað farin að verða á undanhaldi hjá pönksveitum nú til dags. Eða eins og Crass sagði: "Punk is dead" sem Ég tel vera rétt að vissu marki. (Ó.G.).]Við erum ekki að reyna að vera eitt eða neitt, þetta er bara útkoman af því sem við höfum verið að glamra og mætti allt eins kalla rokk eins og pönk. Vð erum öðrum þræði að nota þessa yfirskrift, Pönk 98, til að gera grín að þeim sem vilja setja merkimiða á allt og alla.[Þetta ristir reyndar dýpra en þetta að því leiti að við teljum þetta vera hátíð sem var/er hálf byltingarkennd tónlistarhátíð og útpungun fyrir skoðanir fólks sem hafa kannski skoðanir sem falla ekki í kramið hjá "heldra fólki". Því teljum við nafngiftina "Pönk" vera nokkuð viðeigandi, þó auðvitað sé töluverður grín fnykur af nafngiftinni.(Sjá einnig greinar um Pönk´96 og 97, þar sem fleiri skilgreiningar eru viðraðar) (Ó.G.)].

Pönkið snerist mest um það að gera hlutina sjálfur; að vera frjáls og gera það sem maður vill og það á reyndar við um alla tónlist."

Þeir félagar segja að það skipti þá engu máli hvernig menn vilji flokka tónlistina og því megi eins kalla það pönk. þegar þeir síðan komi fram undir þessari yfirskrift kalli það á þá sem eru að fást við sviðaða tónlistasköpun." Það getur vitanlega vel verið aðþað komi líka afdankaðir límhausar, en þeir eru velkomnir, pönkarar frá 78 eru velkomnir á Pönk 98 líkt og aðrir sem hafa gaman af pönki."

Ó.G.: Ólafur Guðsteinn.

Til baka