Roð

 

Fallbyssufóður

 

Smakkaðu lygasúpuna sem þeir hafa soðið

lestu milli línanna og líttu undir roðið

við fyrstu sín er greinilegt að þetta er eitthvð loðið

líttu svo í annað sinn og þér verður ofboðið

 

Þú verður aldrei vinur minn,það verður engin sameining

þú verður aldrei velkominn ,því þú ert andleg úrbeining

þú vissir hvað átti að gera og ef við málin kryfjum

æji viltu láta mig vera því nú er ég á lyfjum

(VL)

Náttúran er ógeðsleg og vatnið upp úr ánum

ég kveiki í og skeini mig á íslenskum fánum

hæðist að þjóðskáldunum löng,löngu dánum

biskupum og forsetum og öllum þessum bjánum

Ég vildi að við hefðum aldrei komið niðrúr trjánum

 

 

Spitsign

Bullzeye

I never knew that we could sink so low

Crawling barely moving as we let those words of

Ignorance flow

Talking welfare, healthcare and all the shit

That we’ve been told

About our country being great for both young

And old

Fed with lies from the system ‘bout our own

Lives

Our mundane existence kept fresh by

Broadcasting systems

All the latest news and latest commercials

Sucked into our heads as we all are except

Them!

No – this is a dawning of a new age.

No – this is a dawning of a new rage.

Back off back off with your promises and lies

I never believed a single word I’ve got my

Ears mouth eyes

So I’ve seen the way that you behave and you

react

Silence every word we weakly try to talk back

Your days off reigning behind closed doors come

to an end

I don’t believe your words that are always

coming back to mind

 

Forgarður Helvítis

 

 

GELDING ÓSKHYGGJUNNAR

Eftir að reiðar konur

brugðu hníf

milli fóta mér

fór ég að efast

um tilgang breytni minnar

Alveg eins og

í tvöþúsundáragömlu sögunni

eru menn ekki spurðir

áður en skellt er á þá

syndum bræðra sinna

En hvern hef ég

til að ásaka

mitt glerhús

þolir ekki grjótkast

frekar en annara

Það er víst allt sama blóðið

sem fyllir vefinn

Í hræsni minni

hef ég skapað mér sakleysi

úr óskhyggju

Skerið

Skerið

þið reiðu konur

It takes a sexist

to kill a sexist

 

ÞAR SEM HAMINGJAN RÆÐUR RÍKJUM

 

Það er hérna

sem hamingjan ræður ríkjum

Hér er höggormurinn halaklipptur

syndin er vort daglegt brauð

Hér kastar ljósið engum skugga

við höfum ekkert að hræðast

Hér leikur önnur tónlist við hlustir

vængstýfðir englar stýra nótum

Hér stígum við dans eftir strengjum

fáum hvergi fallið

Héðan flýja allar pestir

í svörtu blóði er engin næring

Hér við sáum dauðum fræjum

því hér er tímans stundin runnin

Hér er hver annars spegill

ásjónur af engu snertar

Hér er holdið veika farið

leið þess fundin upprunans

 

 

EÐLISLÆGUR FASISMI

Ég hata þá

einungis vegna þess hvernig þeir níðast

á þeim

sem eiga það ekki skilið

Ég fyrirlít þá

vegna þess að þeir eru trúir skoðunum

sínum

Ég vil drepa þá

vegna þess sem þeir í blindni sinni

eyðileggja

Eins og þeir sá skulu þeir uppskera

Ég hlýt að vera djöfuls fasisti líka

 

 GELDING ÓSKHYGGJUNNAR

Eftir að reiðar konur

brugðu hníf

milli fóta mér

fór ég að efast

um tilgang breytni minnar

Alveg eins og

í tvöþúsundáragömlu sögunni

eru menn ekki spurðir

áður en skellt er á þá

syndum bræðra sinna

En hvern hef ég

til að ásaka

mitt glerhús

þolir ekki grjótkast

frekar en annara

Það er víst allt sama blóðið

sem fyllir vefinn

Í hræsni minni

hef ég skapað mér sakleysi

úr óskhyggju

Skerið

Skerið

þið reiðu konur

It takes a sexist

to kill a sexist

 

VÍTAHRINGUR ÖMURLEIKANS

(Til þeirra vina minna sem eru á mismunandi

mikilli hraðferð til helvítis)

Dansið

Dansið

dans hinna rauðeygðu djöfla

Berjið bumbur

þess gráma

sem litar hvern dag

Hamrið þær

svo svitinn spýtist

þartil engin sól rís lengur

Dragið niður tunglið

til að fullkomna hið algjöra myrkur

Hrækið í blind augu þeirra

sem alsjáandi

brutu reglur einstefnugötunnar

Fyrirlitning ykkar

mun blandast tárum ósýnilega fólksins

Ósýnilega fólksins sem geymir myndir af

sakleysinu

sem við áttum öll

Deyið

Deyið

Þið sem varla hafið lifað

 

Örkuml

Greyið Nonni Óla er ofsóttur af Hannes.

Args aðal óða sem hatar Nonna góða.

Hannes styður krulla, krulli hatar Nonna.

Þeir hata báðir Nonna, þeir hata Nonna góða

 

(VL)

Málpípan hún Hannes hún dansar ekki vel.

Við hverju er að búast af fjarstýrðri vél.

Þeir saman ganga í flokki með ofsóknum,

með aðdróttunarsögum ósönnuðum.

 

Greyið Nonni Óla hann hraktist burt úr landi.

Með konuna og börnin ofsóttu greyin.

Greyið Nonni Óla hann fékk ekki að byggja.

Enginn skyldi reyna kolkrabbann að styggja.

 

Hér er er félagslegt val á þeim hæfustu.

Flokkurinn styður þessa þægustu.

Sem eru þesslegir að græða mikið

og ausa upp fé svo ei sökkvi skipið