Aðalsíða

Hljómsveitarmeðlimir

Myndir

Gestabók

Plötudómar

Pönkhátíðin

Pöntunarlisti

Tengingar

Textar

Tölvupóstur

Útgáfan

Ýmislegt

 

 

Fréttir

26-05-01: Óli og Ingimar eru þeir einu sem eru eftir.  Gunni er eins og áður sagði hættur í Örkuml.  En hann er, ásamt Stebba í Saktmóðig, í hljómsveitinni Sein.  Maggi er svo staddur í New York.  En hann er ekki hættur.  Þannig að ekkert er um spilamennsku þessa stundina.  Við erum þó að semja, og gengur bara nokkuð vel.  Erum komnir með eitthvað um 7-10 lög, full- eða hálfkláruð.

16-08-00: Ingimar og félagar hans í hljómsveitinni Kusan hafa gefið út diskinn "En gaman" og er það mjög svo gaman.

31-07-00: Engar afburða hræringar. Erum þó að vinna nýtt efni og ráða fram út gítarmálum. Sennilega mun Ingimar taka að sér að lemja á gítarinn. Svo eru útgáfutónleikar á döfunni (nánar um þá síðar).

15-06-00: Gunni gítarleikari okkar er hættur. Það er reyndar svona hálfur mánuður síðan hann sagði skilið við okkur. Allt þetta gerðist í góðu, og þökkum við Gunna samstarfið gegnum tíðina, enda á hann allt gott skilið. Þrátt fyrir þetta er hljómsveitin alls ekki hætt. Hún mun halda ótrauð áfram í baráttunni. Sennilega getur hún bara ekki dáið.

15-06-00: Diskurinn góði "Pönkið er dautt" kemur út laugardaginn 17. júní. Fyrst um sinn verður bara hægt að nálgast hann með því að panta hann af okkur gegnum netið. Hann kostar 1500 kr.

03-05-00: Allt meinhægt þessa dagana. Maggi og Ingimar eru í prófum og Óli og Gunni nýbúnir í þeim og farnir að vinna. Það sem mun gerast næst hjá okkur er óráðið, fyrir utan það að pönkdiskurinn fer alveg að líta dagsins ljós. Já, það hefur verið sagt áður en núna er það öruggt, eða næstum því.

04-04-00: Við munum stíga á stokk föstudaginn næstkomandi í M.H. Þar komum við til með að spila með Klink, Snafu o.fl. góðum böndum. Eru þessir tónleikar haldnir í tilefni af útgáfu á blaðinu Moldvarpan. En í því er einmitt viðtal við okkur. Við stöndum í stórræðum þessa dagana, því að við spilum svo aftur  þriðjudaginn 11. apríl á Gauki á Stöng. Þar spilum við með Saktmóðig, Forgarði helvítis og Fallegu gulrótinni.  Þessir tónleikar eru hugsaðir sem nokkurs konar kynningartónleikar fyrir pönkdiskinn "bráðkomandi", sem Örkumlútgáfan er að fara að gefa út.

23-02-00: Nú erum við í Örkuml að fara að spila á tónleikum. Það verður þann 10. mars sem það gerist. Gjörningurinn mun eiga sér stað í Stúdentakjallaranum, og mun hefjast um tíu leytið. Saktmóðigur mun líka gleðja viðstadda af sinni alkunnu snilld. Inngangseyrir kemur til með að vera 300 kr.

05-02-00: Það sem hæst ber þessa stundina er að við erum að vinna í því að koma pönksafndiski út. Á hann að innihalda lög eftir hluta af þeim sveitum sem spiluðu á pönkhátíðunum þremur.

17-08-99: Síðastliðinn laugardag spiluðum við í brúðkaupi fyrrverandi bassaleikara okkar, og tókst það vægast sagt afar vel. Voru gestir á ýmsum aldri, þ.e. frá tveggja til áttatíu og sex ára og gerðu þeir allir góðan róm að spilamennsku okkar. Aðstæður þessara tónleika voru frekar sérstæðar, því við spiluðum í grenjandi rigningu, og er það í fyrsta sinn sem sveitin gjörir það, og reyndar bara í annað sinn sem við spilum á útitónleikum. Eftir situr frábær skemmtun og góður kraftur. Lifi rokksköddun, á öllum aldri!!

19-07-99: Nú erum að fara að stíga á stokk bráðlega. Það mun gerast í brúðkaupi þann 14. ágúst, hjá fyrrum bassaleikara okkar, honum Friðriki Atlasyni. En hann er að fara að giftast sinni heitelskuðu, Olgu Friðriku Antonsdóttur. Aftur á móti verður einhver bið á því að við spilum á almennum tónleikum.

10-05-99: Nú fyrir skemmstu var tekin sú ákvörðun innan hljómsveitarinnar að fara að huga að því að taka eitthvað upp, með það fyrir augum að gefa þær upptökur út síðar á árinu. Svo að við munum halda í hljóðver í byrjun júní. Það sem við höfum á prjónunum er að taka upp eru lög eftir aðra í bland við okkar eigið efni. En hvaða afritunar-lög við tökum svo upp mun verða upplýst síðar.

28-04-99: Í dag barst okkur bréf þess efnis að við værum svikarar, fyrir það að hafa aldurstakmark á Pönkið´99, og var meira að segja disknum "Verð að fá meira" skilað með því, og okkur tjáð að viðkomandi vildi ekki meira af Örkuml. Þetta bréf ætti alveg fullkomlega rétt á sér ef að við hefðum verið svo kræfir að halda umrædda hátíð, sem við blessunarlega gerðum ekki. Því að ef að við hefðum verið eitthvað viðloðandi við skipulagningu hennar ættum við skilið að vera lamdir. En engu að síður erum við afar ánægðir með þetta bréf og þann hug sem það sýndi.

26-04-99: Núna í vikunni mun koma smá umfjöllun um okkur í hinum ágæta þætti Kolkrabbanum. Þar munum við leiða ykkur í allan sannleikan um bandið, ef hann er þá til. Svo fylgist með.

 

Aðalsíða Hljómsveitarmeðlimir Myndir Gestabók

Plötudómar Pönkhátíðin Pöntunarlisti Tengingar

Textar Tölvupóstur Útgáfan Ýmislegt