að lokum við komumst til valda "
Arnar Eggert Thoroddsen veltir vöngum yfir frábærum frumburði Örkumls, Litli ræfillinn frá Vík".
Örkuml gáfu út Litli ræfillinn frá Vík" árið 1995 í hljómsnælduformi og voru þá við að slíta barnsskónum sem hljómsveit. Margar af frumlegustu plötum íslenskrar tónlistarsögu hafa einmitt verið gefnar út á þessu formi og nægir að taka til ódauðleg (og í öllum tilfellum ófáanleg) meistaraverk eins og Minnir óneitanlega á Grikkland" með Bag of Joys, Abduction" með Cranium og Nammsla Tjammsla" með Texas Jesús. Ræfillinn " fyllir auðveldlega þennan flokk. Snældan er hreint ótrúlega heilsteypt verk, hálfgildings klassík sem í dag hefur ekki misst einn einasta vott af sínum hráa og skítuga, nærri því barnalega sjarma.
Verkið byrjar á því að hinn dularfulli fulltrúi landsbyggðarinnar, Doktor Bjössi bóndi, fer lipurri tungu um klámlimru þar sem getur að heyra bragkorn eins og Finn ég köllun hjá mér gagnvart klofinu á þér" og Má ég kanna á þér skautið í kvöld". Örkumlungar renna sér svo í hyllingaróð til handa Bjössa, Doktor Bjössi bóndi" þar sem hann er réttilega kallaður brjálaður kall". Lagið setur tóninn fyrir einstaka nálgun Örkuml við pönktónlistarformið. Stilluppsteypumaðurinn Heimir Björgúlfsson stýrði upptökum á verkinu og tryggir nærvera hans að lögin einkennast öll af þungri og yndislegri vinstri handar hávaðaslagsíðu. Strax í öðru lagi kemur hreint og tært dæmi um þennan þátt, Forboðin fullnæging" sem er ákaflega skemmtileg öskurorgía. Á eftir því stefi kemur sagan af Gutta, um margt furðulegt lag, leitt áfram af móðursjúkum söngkappanum, Ólafi Guðsteini.
Hvatningar- og baráttulag PVF, Verið velkomin" er næst, en þar á hinn óviðjafnanlegi Mr. Maggó sannkallaðan stjörnuleik. Í trylltu viðlaginu sleppir Maggó af sér öllum beislum sem andsetinn væri. Dramatísk uppbygging lagsins er hreinasta snilld. Hlið A endar svo með ljúfsáru minningarrölti um ganga Iðnskólans í skrýtipönklaginu Iðnskólalíf".
Strax í upphafi B-hliðar sýna Örkumlungar að þeir eru rokktenntir. Groddinn" er ægifagurt og ógeðslega gott bárupönk og hefur löngum verið vinsælt uppklappslag á hljómleikum (a.m.k. hjá undirrituðum). Forn frægð" og Meira fjör" eru vel heppnaðir skottúrar í avant-garde" heima, súrrealísk og súr, full af torkennilegum órokkshljóðum. Lagið Sumarfrí" er glæst tjáning Örkumls á óþolinmæðinni og ergelsinu sem fylgir því að bíða eftir sumarfríinu langþráða og Mr. Maggó kemur sterkur inn að vanda með sálsjúkar bakraddir.
Spólan endar með óvanalega melódísku og vel uppbyggðu lagi, ef miðað er við getu og þroska Örkuml á þessum árum. Söguhetjan í Haturshugur" er brjóstumkennanleg og vonlaus, gamall maður með brostin, hrjúfan róm. Sannarlega ofurfalleg og nístandi glæsileg smíð. Kassettan endar svo með miklum aftur á bak" hljóðagjörningi sem innsiglar stórsigur Örkuml á þessari fyrstu útgáfu sinni.
Í dag er kassettan með öllu ófáanleg. Þeir piltar gáfu út sjálfir á eigin merki, Örkumlútgáfunni, og ljósrituðu umslögin og klöstruðu klímmiðum á kassettuna sjálfir. Stórglæsilegur eldhúsiðnaður, stór og stinnur fríðleikspiltur frá Reykjavík. Lifi Örkuml!

Arnar Eggert Thoroddsen, við skrifborðið mitt, 24. apríl 2000