Ræflarokk
"Fornleifapönkfræðingar eru sammála um að það hafi verið á
árunum 1976-77 sem pönkið varð að fjöldahreyfingu. Erfðavísa má þó finna í mun
eldri sýnshornum, til dæmis Kingsmen, Sonics og auðvitað Stooges.
Á Íslandi er þessi sama bylgja kennd við árin 1980-82 og oftar en ekki kvilmyndina
Rokk í Reykjavík. Pönkið var þá í algleymingi. En það var sem kemst í tísku er
jafnframt dæmt til að falla úr tísku aftur og svo fór með pönkið líka. Nú eru
breyttir tímar og tískan í dag ert þú.
Aldamótageðveikin rétt að byrja og ég býð velkomna á sviðið hljómsveitina Örkuml. Þeirra inlegg til jólanna í ár er platan Verð að fá meira. Platan er mjög pönkuð að sjá, umslagið minnir svolítið á Crass, með mynd af kínverskum verkamanni framan á og Saddam Hussein aftan á, en eru blessunarlega ekki á sömu slóðum tónlistarlega. Strax í fyrsta lagi bregður fyrir píanói og bætir skemmtilegri vídd í Purrkslegt pönkið.
Lagið Fisklund fylgir á eftir, gott lag með stórundarlegum texta um
fiskveiðistefnuna og áhrif hennar á fjölskyldulíf landsbyggðarfólks. Þeir eru
greinilega svolítið að pæla í pólitík. Besti texti plötunnar, a.m.k. ef maður er
ekki kímnigáfulaus Vestmanneyingur, er lagið Ungfrú lundapysja þar sem
þjóðhátíðarstemmingin er krufin til mergjar.
Örkuml er gott rokkband sem líður fyrir flatan hljómburð sem skrifast kannski að
einhverju leiti á stúdíóið í Fellahelli. Platan vinnur þó á við hverja hlustun
og gefur fögur fyrirheit um frekari afrek hljómsveitarinnar í framtíðinni. Plata
fyrir þá sem vilja fylgjast með."
(Birtist í Fókus í desember. Ari Eldon Skrifarði þessa gagnrýni, og fékk platan tvær og hálfa stjörnu hjá honum).