Ýmislegt

©Jónas Gunnlaugsson


     Í litningunum er þekking fortíðarinnar ofin í efnið. Þar geymir hvert lífsform, reynslu og þekkingu ármiljóna, til nota fyrir nútíðina og framtíðina. Flest lífsform á þurrlendi í dag, eru í hitabeltisskógum jarðarinnar. Þessa skóga, erum við nú að höggva og brenna, og þar með þekkingu og reynslu fortíðarinnar, eða jafnvel sköpunina sjálfa. Við eyðum þessum söfnum, eða gagnageymslum, og höfum nú þegar glatað stórum hluta af þekkingunni. Þessa þekkingu átti að nota til að móta lífsform framtíðarinnar, kjötbollutré, fiskibollutré, upphitunnarrunna, ljósatré og áltré. Íslensku plönturnar lögum við að þörfum okkar, sortuberið, eða mjölið, verður 1 kg, krækiberið, bláberið, hrútaberið verða eins og vínber eða stærri, barrtrén verða með alls konar ávöxtum, og ekki má gleyma eininum Fífan og loðvíðirinn verða mun loðnari, með 10 til 20 cm þráðum, sem við notum til vefnaðar, belgjurtirnar verða okkar sojabaunir og svona má halda áfram. Í Canada er til plöntuafbrigði, sem hefur innbyggt upphitunarkerfi. Sumar plöntur mynda áburð úr loftinu. Þessa eiginleika eigum við að innbyggja í ýmsar af okkar plöntum. Hvað getum við gert til að hjálpa þeim, sem nú fella hitabeltisskógana, eða gagnageymslurnar, til að lifa góðu lífi, um leið og þeir nýta og gæta einhverrar mestu auðlegðar veraldarinnar.     


"The Hunger Argument" -- "Rainforests are the finest celebration of nature ever known on the planet."
Global Warming -- Rainforest -- Amazon Rainforest -- 1-World Trees -- Tropical Forests Scenario

Vindstig, m/sek, km/klst --- Rafstaur --- Reyklaus ---- You can create a climate for growth

Ýmsir staðir á Austurlandi. ---Egilsstaðir---Egilsstaðabær---Menntaskólinn á Egilsstöðum og Eiðum
Sendu ábendingar til: JG