|
Hugform ehf. - námskeið, fræðsla,
ráðgjöf - Rósa
Traustadóttir - Miðengi 3 - 800 Selfoss - s. 482 2296/698
2295
[heim]
FENG SHUI, hvert einasta ástand er einstætt.
Grein eftir Rósu Traustadóttur
Það hefur heilmikið verið ritað og rætt
um Feng Shui á Íslandi á undanförnum mánuðum
og er það vel. Það er alveg ljóst að alltaf
þegar um víðfeðm fræði er ritað er mismunandi
bakgrunnur notaður og oft byggt á of litlum heimildum. Feng
Shui (borið fram “fong svæ”) er mörg þúsund
ára fræðigrein og sem slík yfirgripsmikil og flókin,
gömlu meistararnir voru allt sitt líf að læra fræðin.
Það er því svolítið sorglegt þegar
ritað er um Feng Shui sem eitthvað einfalt og auðvelt og taka
það út úr samhengi því fræðin
einmitt byggja á heild, einingu og jafnvægi. Það
er því ekki rétt að hægt sé að
taka eitthvað eitt út úr og taka síðan ekki
tillit til þess sem eftir er því það getur
gert meira skaða en gagn. Það er líkt og að planta
rósum í grýttan jarðveg, þær munu
ekki dafna.
Feng Shui er í raun aðferð til að skapa jafnvægi
milli fólks og umhverfis þannig að báðum aðilum
líði betur. Hugsunin er sú að manneskjan, jörðin
og alheimurinn myndi heildarsamræmi.
Feng Shui þróaðist þegar farið var að
skoða að manneskjan verður fyrir áhrifum af umhverfi
sínu bæði á jákvæðan og neikvæðan
hátt. Sum svæði eru heilbrigðari, friðsælli
og betur til búsetu fallinn.
Feng Shui þýðir orðrétt: Vindur og vatn.
Vindurinn dreifir chi, það sem oft er nefnt hin ósýnilega
lífsorka og vatnið rúmar hana. Þegar verið
er að vinna með Feng Shui þá dregur maður að
cheng chi hina jákvæðu orku og beinir frá cha chi
eða hinni neikvæðu orku
Feng Shui byggir fyrst og síðast á jafnvægi
og þar kemur inn Yin og Yang, samkvæmt austurlenskum fræðum
er hægt að flokka allt samvkæmt Yin og Yang og ekkert getur
orðið úr Yin ef ekki kemur til Yang líkt og ef myrkrið(yin)
væri ekki til staðar væri heldur ekkert ljós (yang).
Þar sem er gott jafnvægi þar er gott Feng Shui en
það er einmitt ójafnvægi hvers konar sem á
sök á erfiðleikum, vanlíðan, veikindum osfrv.
Ef náttúran er í ójafnvægi þá
flæða ár yfir bakka sína, eldgos spúa, fellibyljir
herja og svo mætti lengi telja. Þegar manneskja er í
ójafnvægi getur það komið fram á ýmsan
hátt s.s. viðkvæmni, rifrildi, þunglyndi, veikindi
ýmis konar. Það má líkja þessu öllu
við kvóta, hver eining hefur sinn kvóta ef farið
er yfir kvótann skapast ójafnvægi. Það er
því hið hárfína jafnvægi sem nauðsynlegt
er.
Feng Shui fræðin flokkast í nokkuð marga skóla
eða stefnur og mismunandi hvað hver meistari eða ráðgjafi
sérhæfir sig í. En það er með Feng Shui
eins og smiðinn að mismunandi aðstæður krefjast mismunandi
verkfæra og því er oft notuð fleiri en ein stefna.
Helstu skólar/stefnur í Feng Shui eru:
Form skólinn; tekur mið af formi, stuðningi og
hinum 4 himnesku dýrum.
Áttavita-skólinn; tekur mið af höðuðáttunum
8 húsa-kenningin; tekur mið af hinum átta
húsum, bestu og verstu áttum.
Flying star Feng Shui; tekur mið af útreikningi samkvæmt
höfuðáttum, aldur húsa og talnapörum.
Black hat skólinn; tekur ekki mið af áttavita
heldur inngangi að híbýli.
Allir skólarnir taka síðan mið af elementunum
fimm þ.e. vatni, tréi, eldi, jörð og málmi
og þeirra samspili. Hægt er að auka og minnka hvert element
eftir því sem við á. Vegna þess að hvert
einasta ástand er einstætt er þess vegna nauðsynlegt
að taka mið af því heildræna, að sjá
heildarmyndina en ekki að detta í eitt smáatriði
og gleyma sér í því það er ekki Feng
Shui.
Feng Shui fræðin hafa stundum verið nefnd innréttingaheimspeki,
það tel ég ekki vera réttnefni því
fræðin eru svo miklu meiri en það en aðalmarkmiðið
er að manneskjunni líði vel og finni sig í umhverfi
sínu.
Heimili hvers og eins á að vera griðarstaður þar
sem öllum líður vel ef svo er ekki er eitthvað ójafnvægi
til staðar sem hægt er í mörgum tilvikum að laga.
Sama lögmál á við vinnustaði. Ólík
öðrum stefnum og straumum sem viðkemur híbýli
og umhverfi miðast Feng Shui ekki við tískustrauma og bylgjur
heldur er sjálfstæð og örugg miðað við
hverfulleika tískunnar.
Gott Feng Shui getur aukið velgengni, fjárstreymi, bætt
heilsu, bætt samskipti hvers konar en það þýðir
ekki að manneskjan sjálf þurfi ekki lengur að framkvæma
heldur er þetta ákveðið samspil sem tvinnast áfram
og því er stundum sagt að Feng shui sé ekki
áfangastaður heldur stöðugt ferðalag.
Þegar byrjað er að skoða híbýli er byrjað
á forminu, þe. Hvernig liggur húsið?, hvar er framhliðin?,
hvar er bakhliðin?, er stuðningur við húsið eða
vantar stuðninginn? Formið byggir í raun á að
vera ekki berskjaldaður, líkt og góður hægindastóll
sem veitir stuðning úr öllum áttum og þú
færð öryggistilfinningu sem þig vantar þegar
þú situr á kolli.
Á bak við í norðri er skjaldbakan, fyrir framan
í suðri er phoenix fuglinn, til hægri í vestri
er hvíti tígurinn og til vinstri er græni drekinn í
austri. Þar sem tígurinn og drekinn mætast er besta
staðan fyrir húsið samvkæmt form-skólanum.
Það er nauðsynlegt að phoenix fuglinn hafi ákveðið
rými til suðurs og eins nauðsynlegt að hafa góðan
stuðning í norðri eða á bakvið því
eins og flestir íslendingar eru meðvitaðir um er ekki gott
að vera berskjaldaður.
Því næst er hugað að aðkomu hússins,
hvaða tilfinningu fær gestkomandi fyrir íbúum hússins?
Það eru ótrúlega miklar upplýsingar sem
liggja í þeirri skoðun. Þeir sem einhvern tímann
hafa borið póst í hús gera sér grein
fyrir þessu. Þú færð strax á tilfinninguna
hvers eðlis er, hver gildi íbúanna er.
Snyrtimennska er að mörgu leyti fyrsta reglan í Feng
Shui, ef allt er á kaf í óreiðu hverfur einbeitingin
og manneskjan verður hluti af óreiðunni. Óreiða
letur en snyrtimennska hvetur. Allir burðast með ótrúlega
mikin óþarfa með sér, geymsluloft, bílskúrar,
hillur eru oft á tíðum full af óþarfa dóti
og drasli sem við tímum ekki að losa okkur við, höldum
að við þurfum einhvern tímann á því
að halda. Það er til lögmál sem segir að
ef þú heldur í of mikið færðu ekkert
nýtt í staðinn, þetta lögmál er hægt
að yfirfæra á nánast allt. Allt er stöðugt
að endurnýjast líkaminn endurnýjar frumur sínar
stöðugt, vatnið er á hreyfingu, árstíðir
skipta reglulega, tunglið gengur sinn gang svo og önnur himintungl.
Manneskjan verður líka að endurnýja sig og bæta.
Gömul fastmótuð viðhorf, neikvæðni, reiði,
þunglyndi allt er þetta dæmi um staðnaða orku
sem ekki hefur verið endurnýjuð.
Ef þú vilt vinna með Feng Shui á heimili þínu
er fyrsta byrjunin að losa sig við óþarfa dót
og drasl, sem þú hefur ekkert að gera við, föt
sem þú notar ekki lengur, hlutir sem þér þykja
ekki vænt um, einnota bækur sem engin les það er
til fullt af söfnunum og stofnunum sem taka við slíku og
sem kemur að miklu betra gagni en að rykfalla í geymslum.
Ofhlaðin hús og ofhlaðnar íbúðir gefa
ekki færi á að leyfa orkunni að leika eðlilega
um, of margar neikvæðar minningar tengjast mörgum hlutum
t.d. þegar fólk með fortíð binst böndum
og til er tvennt af öllu er nauðsynlegt að fara vel yfir það
sem áætlað er að byggja nýja sambandið
á.
Samkvæmt Feng Shui er heimilið griðastaður þar
sem öllum á að líða vel, heimilisfólki
á að þykja heimilið sitt fallegt og því
á að líða vel innan veggja þess, það
er gott Feng Shui.
_____________________________________________________
[heim]
|