|
Hugform ehf. - námskeið, fræðsla,
ráðgjöf - Rósa
Traustadóttir - Miðengi 3 - 800 Selfoss - s. 482 2296/698
2295
[heim]

Á þessu námskeiði lærir
þú að efla hæfni þína í mannlegum
samskiptum, setja þér markmið, styrkja sjálfstraustið
og móta þér framtíðarsýn.
Aðaláherslan á þessu námskeiði er
að kynnast sjálfum sér betur, að byggja upp sjálfstraust
og sjálfsvirðingu, og að taka ábyrgð á
sjálfum sér. Kenndar eru sannreyndar aðferðir til
að efla sjálfan sig og einbeita sér að sínum
sterku hliðum.
Kannanir sýna að þeir sem hafa heilbrigt og jákvætt
sjálfsmat, gengur betur í flestu sem þeir taka sér
fyrir hendur. Þeim líður betur og líta jákvæðari
augum á lifið og tilveruna almennt. Samkvæmt rannsókn
Myers og Dieners einkennir hamingjusamt fólk gott sjálfsálit
og meiri stjórn á eigin lífi ásamt því
að vera bjartsýnna og félagslyndara en aðrir.
Kennd er áhrifarík markmiðasetning og farið í
þá þætti sem mikilvægir eru til að eiga
ánægjuleg samskipti við annað fólk. Það
er staðreynd að gott sjálfsmat er einn af hornsteinunum
að hamingjuríki lífi og ef við eigum gott með
að umgangast fólk gengur okkur betur í öllu sem
við tökum okkur fyrir hendur. Ef þú síðan
lærir að setja þér raunhæf markmið ert
þú kominn í hóp þeirra sem ná þeim
árangri sem þeir ætla sér.
Þetta námskeið byggir á hugmyndafræði
Brians Tracy, Napóleons Hill, Zig Ziglar og Victoriu Moran.
Þetta námskeið er hnitmiðað og árangursríkt.
Þetta er 3-6 tíma námskeið, námsgögn
fylgja. Frábært námskeið á frábæru
verði. Þetta er nýjasta námskeið sem Hugform
býður upp á og hefur það fengið mjög
góðar viðtökur. Hægt er að panta sérstök
námskeið fyrir hópa, lágmarksfjöldi er þá
8 einstaklingar. Frábært fyrir minni félagasamtök,
fyrirtæki, fjölskyldur og saumaklúbba. Kem hvert á
land sem er.
Leiðbeinandinn:
Leiðbeinandi námskeiðsins er Rósa Traustadóttir
sem er sérþjálfaður
leiðbeinandi fyrir Brian Tracy International. Hún er menntaður
Bókasafns-
og upplýsingafræðingur frá Háskóla
Íslands og einnig með BA gráðu í Ensku.
Hún hefur margra ára stjórnunarreynslu.
Skráning:
Hægt er að skrá sig með tölvupósti
og einnig er hægt að hringja í síma 698 2295 eða
482 2296.
Boðið er upp á almenn námskeið og einnig
sér námskeið fyrir fyrirtæki eða
hópa.
Hafðu samband!
[heim]
Ábyrgðarmaður: Rósa Traustadóttir
/ Vefsíðugerð: Kristín
Runólfsdóttir -www.kurl.is
|