Hugform ehf. - námskeið, fræðsla, ráðgjöf - Rósa Traustadóttir - Miðengi 3 - 800 Selfoss - s. 482 2296/698 2295

[heim]


Þetta hrífandi stjörnufræðikerfi er upprunnið í Kína, það hefur tekið miklum breytingum í aldanna rás og á síðustu fjörutíu árum hefur það breiðst út til Japans og Vesturlanda og notið gríðarlegra vinsælda. Þetta kerfi byggir á níu stjörnu kerfi og á níu ára hringrásum með níu húsum. Þú munt fá hugmynd um hvaða stjarna var til staðar þegar þú fæddist, þ.e. hvaða ríkjandi element hafði áhrif á persónuleika þinn, hver aðaltala þín er, sem svipar til sólarstöðu í vestrænni stjörnuspeki. Einnig muntu fræðast um þinn innri persónuleika sem byggir á í hvaða mánuði þú fæddist og svipar til tunglstöðu í vestrænni stjörnuspeki. Þessi stjarna gefur þér innsýn í framkvæmdarorku þína og hvernig þú bregst við streitu og áreiti.Síðan munt þá fá vitneskju um orkutölu þína sem skýrir frá því hvernig þú kemur öðrum fyrir sjónir og tjáir þig. Í vestrænni stjörnuspeki svipar hún til þess sem kallað er rísandi merki. Þessar þrjár tölur gefa þér einstaka sýn á hver þú ert og síðan kemur framí hvaða húsi þú ert núna, þú breytir um hús á hverju ári. Hvar þú ert staddur í þessari níu ára hringrás, hefur áhrif á heilsu þína,tilfinningar, framkvæmdarorku og samskipti þín við aðra. Á þessu níu ára hringferli eru tímar þar sem þú ert í vetrarorku, svolítið óvirkur, þögull og ekki eins gefin fyrir samskipti, sem er ekki góður tími til að takast á við ný verkefni eða meiri háttar breytingar. Á öðrum tíma getur þú verið í haustorku sem er góður stöðugur tími þar sem þú uppskerð það sem þú hefur sáð til á undanförnum árum eða í vororku þar sem tækifærin bíða eftir þér og gott er að hefjast handa við ný verkefni. Að vita hvar þú ert staddur getur verið mjög gagnlegt ef þú ert t.d. að hugleiða flutninga, skipta um vinnu eða gera aðrar breytingar á högum þínum. Þetta er allt spurning um jafnvægi, að vinna með þeirri orku semfyrir er, að synda með straumnum en ekki á móti honum.
 

Útreikningur á aðaltölu er mjög einfaldur og fylgir hér: manneskja fædd 1965, tekur síðustu tvær tölur úr ári og leggur saman 6+5=11 leggur saman þar til útkoman verður minni en 10, 1+1=2 dregur síðan útkomuna frá 10 (fastur stuðull) 10-2=8, þ.e. einstaklingur sem er 8 Jörð. Ef reiknað er út grunntala einstaklings sem fæddur er á þessari öld þ.e. 2000 og þar yfir verður að reikna út allt árið þ.e. útkoman verður 2 en fasti stuðullinn breytist úr 10 í 11 þ.e. 11-2= 9 Eldur. T.d.: Fæðingarár 2005 = 2+5=7 11-7= 4 Tré. Ef þú ert fæddur fyrir 04.02 þarftu að taka árið á undan sem þína tölu.

Ertu vatn, tré, eldur, jörð eða málmur sjá nánar

Í stjörnukortinu færðu vitneskju um hvaða grunnelement er ráðandi í þínum persónuleika og hvernig þú getur nýtt þér þá vitneskju til að vinna með sjálfum þér.Þú færð útlistingu á öllum 9 húsunum þ.a. þú ert með grunnvitneskju sem nýtist þér það sem eftir er. 

Nauðsynlegar upplýsingar fyrir stjörnukort: 
Fullt nafn, fæðingardagur og fæðingarár.

Stjörnukort er frábær tækifærisgjöf.
Hafðu samband!

[heim]


Ábyrgðarmaður: Rósa Traustadóttir / Vefsíðugerð: Kristín Runólfsdóttir -www.kurl.is