|
Hugform ehf. - námskeið, fræðsla,
ráðgjöf - Rósa
Traustadóttir - Miðengi 3 - 800 Selfoss - s. 482 2296/698
2295
[heim]
Hvað er Feng Shui ?
Bein þýðing er vindur og vatn
Feng Shui er í raun allsherjar sýn á heiminum
þar sem himininn, jörðin, maðurinn, plöntur, dýr
og hlutir skipta máli. Lífsorkan eða CHI er í
öllu Feng Shui er 3000 ára gömul austurlensk heimspeki.
Samkvæmt Feng Shui getur þú staðsett og endurskipulagt
heimili þitt eða vinnustað og þannig unnið með
orkunni. Með því að vinna með orkunni getur þú
aukið velgengni þína hvort sem er á sviði heilsu,
andlegs lífs, fjárhags eða starfsánægju.
En það var aldrei ætlun kínversku meistaranna sem
þróuðu Feng Shui á mörg þúsund
árum að allt þetta tækist með því
einu að færa til húsgögn heima hjá sér.
Feng Shui er miklu meira en það. Sumir hafa gengið svo langt
að kalla þessa fræðigrein innréttingaheimspeki
sem er of mikil einföldun. Manneskjan sjálf hefur jafn mikið
vægi, viðhorf hennar skoðanir lífsstíll, mataræði
og hreyfing. Það er spurningin að vinna með lífskraftinum
vera í flæðinu og síðan er hægt að
gera þetta enn persónulegra út frá Feng Shui
stjörnuspeki. Feng Shui er ekki áfangastaður heldur stöðugt
ferðalag sem vindur upp á sig eftir því sem ný
vitneskja bætist við, sú vitneskja breikkar og stækkar
heildarmyndina.
Lögmál Feng Shui eru t.d. notuð til að aðgreina
góðar og slæmar áttir fyrir hvern og einn. Hvar
er best að staðsetja heimili sitt, hvernig er best að útidýrnar
snúi osfrv. Á heimilum getur rétt staðsetning
samkvæmt Feng Shui myndað góð tengsl milli hjóna,
ýtt undir góða heilsu, dregið að gæfu og
velgengni og hjálpað til við að skapa góðan
orðstír. Í kínverskri menningu skipar fjölskyldan
og orðstírinn háan sess og var litið á gottt
Feng Shui sem nauðsyn fyrir kærleiksrík samskipti karls
og konu og myndu auka líkur á barnaláni og góðan
orðstír fyrir fjölskylduna. Sömu lögmálin
gilda í viðskiptalífinu. Slæmt Feng Shui mun hins
vegar auka á veikindi, slys og fjárhagslegt tjón.
Slæmt Feng Shui verður til þess að tækifæri
gloprast niður, starfsferill bliknar og fjárhagur versnar. Gott
Feng Shui er janfvægi við hina 5 eðlisþætti jarðar
þ.e. vatn, tré, eld, jörð og málm.
Góð ráð fyrir alla sem vilja tileinka sér
Feng Shui
Á næstu vikum verður að finna gott ráð
handa þér samkvæmt Feng Shui hér á þessum
stað:
1. Ráð ef þú vilt beita lögmálum
Feng Shui
Það er í raun að taka vel til með feng shui
hugarfari, sem byggist á því að losa sig við
allt óþarfa drasl og hluti sem þú notar ekki
og þykir ekki vænt um.
Hvað er drasl/óreiða samkvæmt Feng Shui?
-
Gamalt dót sem þú notar ekki lengur
-
Hlutir sem þér þykir ekki vænt um
-
Gömul föt sem þú ert hættur að nota
-
Gamlar bækur sem þú notar ekki lengur
-
Óreiða í eigin huga, neikvæðar tilfinningar
-
Drasl kallar á meira drasl!!!!!
Ef þú fyllir íverustað þinn hvort sem það
er heimili eða vinnustaður af óþarfa drasli, gefur
þú ekki færi á að fá ný tækifæri
inn í líf þitt. Þú ert að blokkera
Chi eða orku. Um leið og þú lætur eitthvað
af hendi færðu eitthvað tilabaka, það er sannreynt
lögmál
2. Ráð ef þú vilt beita lögmálum
Feng Shui
Þegar þú ert búin að losa þig við
óþarfa hluti og hluti sem þér þykir ekki
vænt um þá er næsta skrefið að huga að
aðkomunni að húsinu þínu eða íbúðinni
þinni. Hvernig er umhorfs? Hver er fyrsta tilfinningin sem þú
færð? Er eitthvað sem þarf að laga? virkar dyrabjallan?
er húsið þitt merkt? Er aðkoman snyrtileg? Ef þú
værir að koma að húsinu/íbúðinni
þinni í fyrsta sinn, hvaða tilfinningu fengir þú?
Allir sem ganga framhjá húsinu/íbúðinni
þinni senda ákveðna orku, hvaða orku ert þú
að fá frá öðrum oft á dag?
3. Ráð
Hvernig snýr húsið þitt/íbúðin
þín? þá er að sækja kompásinn
og finna hvernig áttirnar snúa. Best er að standa í
aðaldyrum og snúa út úr húsinu/íbúðinni
og taka áttina þannig. Síðan er næsta skref
að huga að Pa Kua hússins/íbúðar þ.e.
hvernig snúa hinir ýmsu þættir? hvar er samskipta-
og ástar hlutinn? hvar er framinn og velgengninn? hvar er heilsusvæðið
og hvar lendir baðherbergið? hvað er það sem þú
vilt örva og bæta? allt þetta byggist á að
taka áttirnar nákvæmlega og leggja síðan
Pa Kua yfir. Meira um Pa Kua í næstu viku.
4. Ráð
Hvað er Pa Kua?
Það er það sem skiptir hvað mestu máli
þegar unnið er með Feng Shui, þannig finnum við
hvar hin ýmsu svæði eru í húsinu/íbúðinni
eru þ.e. frægð og frami, samskipti og ást, börn
og hugmyndir
Suð-austur
4
TRÉ
Lífsgæði og blessun |
Suður
9
ELDUR
Frægð og viðurkenning |
Suð-vestur
2
JÖRÐ
Hjónaband og samskipti |
Austur
3
TRÉ
Heilsa og fjölskylda |
Miðjan
5
JÖRÐ
Jafnvægi og heilsa |
Vestur
7
MÁLMUR
Börn, áform,
sköpunarkraftur |
Norð-austur
8
JÖRÐ
Nám og íhugun |
Norður
1
VATN
Velgengni og starfsframi |
Norð-vestur
6
MÁLMUR
Vinir, ferðalög, velgjörðamenn |
Þá er bara að leggja Pa Kua planið yfir teikningu
af húsi/íbúð og skoða hvar hin ýmsu
svæði lenda og vinna út frá því.
5. Ráð
Hvernig er aðkoma hússins/íbúðar? er hún
snyrtileg? lítur allt vel út? hugsar þú í
huganum þegar þú kemur heim " mikið á ég
gott að búa hér ". Mjög mikilvægt í
Feng Shui að aðkoman sé góð á því
byggist framhaldið þ.e. hvernig CHI (orku) ert þú
að fá inn í heimilið þitt.
6. Ráð
Hvernig lítur anddyrið út? snyrtilegt? ekki of mikið
af fötum sem engir notar og skór útum allt? það
er mjög slæmt og stöðvar hið góða CHI
sem við viljum fá inn til okkar. Er spegill beint á móti
aðalhurðinni? það er mjög neikvætt, prófaðu
að taka hann niður og setja t.d. til hliðar við útidyrahurðina,
þannig stækkar þú rými anddyrisins og kastar
ekki hinu góða CHIi beint út aftur. Hafðu bjóðandi
innkomu t.d. falleg blóm eða mynd. Rólega lýsingu
og ekki of sterka liti. Hér er mjög gott að nýta
sér áhfrif peningafrosksins ef
við viljum setja áherslu á aukið fjárstreymi
til heimilisins, passa að hann snúi rétt!
7. Ráð
Gangurinn og holið: áfram er það snyrtimennskan
sem gildir og að hafa ekki ofhlaðið af húsgögnum
og myndum. Nota spegla ef þröngir gangar, nota létta
gardínu ef gangur mjög langur. Hafa myndir uppi sem þér
þykir vænt um og koma þér í gott skap hafa
liti að mestu ljósa en hægt að nýta sterka
liti með fer eftir hvernig höfuðáttirnar snúa.
8. Ráð
Svefnherbergið: við verjum ótrúlega
miklum tíma í svefnherberginu og því er það
mjög mikilvægur hluti af rými hússins/íbúðarinnar.
Í fyrsta lagi hvernig er best að rúmið snúi?
best er að það sé upp að heilum vegg með góðu
útsýni að hurð þ.a. þú sjáir
hver er að koma inn um dyrnar þegar þú liggur í
rúminu. Mjög gott er að rúmið sé með
góðan höfuðgafl, það skapar góða
vernd.
Gott að hafa náttborð báðum megin við
rúmið (ef um hjónarúm að ræða) og
lampa á borðunum, forðast skal lampa sem eru veggfastir
og lýsa beint niður það myndar óþarfa
spennu og þrýsting til lengri tíma litið. Speglar
skulu vera fáir og fremur smáir og alls ekki staðsettir
þannig að þú sjáir sjálfan þig
úr rúminu.
Gott að hafa fallegar myndir sem minna þig á
markmið þín en róa þig jafnframt niður.
Losa um allt óþarfa drasl sérstaklega á bak
við hurðir og undir rúmi þar er best að hafa snyrtilegt
og sem minnst af aukadóti. Alls ekki að hafa óhreinatausdall
inni í svefnrýminu. Til að vekja rómantíkina
er gott að hafa mandarínandarpar
í rýminu t.a.m. í glugga eða best í suðvesturrými
herbergisins. Gott að taka til í fataskápum sem eru í
svefnrými og rýma til í skápunum t.d. hægt
að setja í kassa föt sem ekki hafa verið notuð
í eitt ár eða meira.
Mjög gott að venja sig á að búa um rúmið
á hverjum morgni og loka þannig nóttinni og taka vel
á móti deginum.
Meira í næstu viku!
Ráðgjöf og fræðsla:
Veiti ráðgjöf í heimahús og fyrirtæki.
Hægt að panta fyrirlestur um
Feng Shui.
[heim]
Ábyrgðarmaður: Rósa Traustadóttir
/ Vefsíðugerð: Kristín
Runólfsdóttir -www.kurl.is
|