| Til baka |
|
Ég hef safnað uppskriftum í um það bil 45 ár og uppskriftirnar hér að neðan hef ég ýmist fundið í einhverjum bókum eða bæklingum sem ég á, klippt úr blöðum og tímaritum eða fengið hjá vinum og/eða ættingjum. Ég hef prófað flestar uppskriftirnar, sumar bara einu sinni eða tvisvar en aðrar hef ég notað árum saman. Ég get þess hvaðan ég hef fengið hverja uppskrift fyrir sig ef ég þá veit það og það þýðir ekkert að fara að skrifa mér og segjast "eiga" einhverja uppskriftanna - ég mun ekki ansa neinu slíku röfli, enda orðin 65 ára og hef fullan rétt á að vera eins elliær og mér sjálfri sýnist :-)))))) Þigg alltaf fleiri uppskriftir, svo maður tali nú ekki um sé fólk að taka til og henda lúnum og þvældum matreiðslubókum, úrklippum og lausum blöðum :-) :-) |

Frá 18.nóv. 2003