Fingur bendir
Til baka

 
  Úr skúffum og skápum ömmu  
  Vinsamleg tilmæli:

Ég veit, er ég dey, svo verði ég grátinn,
þar verðurðu eflaust til taks.
En ætlirðu blómsveig að leggja á mig látinn
þá - láttu mig fá hann strax.

Og mig, eins og aðra, sem afbragðsmenn deyja,
í annála skrásetur þú;
og hrós um mig ætlarðu sjálfsagt að segja
en - segðu það heldur nú.

Og vilji menn þökk, mínum verðleikum sýna,
þá verður það eflaust þú,
sem sjóð lætur stofna í minningu mína
en - mér kæmi hann betur nú.

Og mannúðarduluna þekki ég þína,
sem þenurðu dánum í hag.
en ætlirðu að breiða yfir brestina mína,
þá - breiddu yfir þá í dag.

 
  Fann þetta á blaði við tiltekt í skúffum og skápum - uppruni ókunnugur.


Ruggustóll