Fingur bendir
Til baka

 
  Úr skúffum og skápum ömmu  
  Heilsubað ömmu gömlu:
Ég er ekkert fyrir meinlæti og hef því hannað mitt eigið afslöppunar-, hvíldar- og heilsubað. Óþarft er að taka fram að snafsinn á að vera í eintölu og bjórinn líka !


Heilsubað

  • Fullt baðkar af vel heitu vatni, annað hvort freyðibað eða með ilmjurtum, jafnvel með gigtarolíu.
  • Góð tónlist að eigin vali, mátulega hátt stillt og innan seilingar.
  • Nokkur logandi kerti til að gefa hlýja birtu
  • Góður áfengur drykkur, mér finnst ágætt að fá mér t.d. eitt staup af Gammel Dansk og einn kaldan bjór.
  • Friður og ró.
  •  
      Slappað af yfir drykknum og tónlistinni eins lengi og maður nennir. Fínt að skríða svo undir sæng og steinsofna í svo sem klukkutíma. Alveg ROSALEGA afslappandi og yndislegt !!


    Prófaðu barar - ef þú þorir !

     


    Ruggustóll