|
|
Það er langt síðan ég ákvað að leggja mig alla fram um að verða erfitt gamalmenni þegar þar að kæmi - ef
mér skyldist nú endast líf til að láta þann draum rætast. Nú er ég komin vel á sjötugsaldur og mun hér
eftir hvorki heyra, sjá, skilja, vita né geta - nema það sem mig langar til sjálfa og það gildir vitanlega
um öll atriðin. Ekki svo að skilja að ekki geti svo farið að ég uppfylli öll ofantalin atriði án þess að leggja mig neitt
sérstaklega fram um það, en það kemur þá bara í ljós á sínum tíma.
Það drífur nú ýmislegt um dagana á langri ævi og eitt af mínum "lífsævintýrum" er að hafa oftar en ekki átt
við töluverða vanheilsu að stríða - en ég er vitanlega ekki ein um það eins og eftirfarandi kvæði vitnar um:
"Nú líður mér illa,
lasinn er ég..." meira >>>
|
Mér bárust óvænt nokkrar bráðskemmtilegar "heldri borgara" vísur í tölvupósti:
"Ef efri árin endast vel,
engu þarf að kvíða..." meira >>>
|
Það er ekki svo afleitt að eldast, þegar horft er til þeirrar staðreyndar að þeir einir verða gamlir sem
ekki dóu ungir. Og sé maður svo lánsamur að ná því að verða gamall er um að gera að leggja sig fram um að njóta
elliáranna eftir því kostur er því:
"...og Goethe kallinn sem grúskaði þó í flestu:
á gamals aldri oss taldi það fyrir bestu..." meira >>>
|
Svo þegar ævin er öll vonast maður til að verður mærður á síðum Moggans í bak og fyrir eða hvað ?
Ég kýs heldur að vinir og vandamenn verði við þessum vinsamlegu tilmælum:
"Ég veit, er ég dey, svo verði ég grátinn,
þar verðurðu eflaust til taks..." meira >>>
|

|
Með öll þessi ár á bakinu þarf maður að muna að dekra svolítið við sjálfan sig öðru hverju,
það eru hvort eð er sjaldnast aðrir til þess...
Við "gamla settið" fórum til dæmis í ellismell að okkar hætti, 10 vikna flakk um Evrópu síðastliðið í sumar
og dvöldum mestan hluta ferðarinnar í tjaldinu okkar, sem er stórt og gott rúmlega 20 ára gamalt hústjald
sem hefur þvælst víða með okkur, utanlands jafnt sem innan og okkur líður alltaf vel í.
Við fórum með Norrönu til Danmerkur, ókum til Hamborgar og settum bæði okkur og bílinn á lest til Sviss og ferðuðumst síðan um Sviss,
Norður-Ítalíu og Austurríki og svo með lest til baka til Hamborgar, svo norður til Hanstholm og um borð í
Norrönu. Leigðum okkur hræódýrt eðal-sumarhús í Færeyjum þann tíma sem við þurftum að bíða þar meðan skipið
fór til Bergen.
Þetta var alveg meiriháttar ævintýri, fengum gott veður allan tímann - okkur fannst nú reyndar orðið ansi
heitt þegar hitinn var kominn uppí 38 gráður - og fórum ótal ferðir með kláfum upp á fjöll og gengum þar um
og höfðum það alveg eins og blóm í eggi.
Sumum fannst þetta bara skratti góð hugmynd hjá okkur, aðrir jesúsuðu sig í bókstaflegri merkingu -
galin gamalmenni á gandreið um Evrópu !

Fleira þarf nú að gera en ferðast. Halda þarf skrokknum við með því að gera einhverjar styrkjandi og
liðkandi æfingar, synda eða fara út að ganga, helst eitthvað af þessu daglega.
Svo líka gott að eiga rafdrifið rúm svo vel fari um gamlan og lúinn skrokkinn, góðan
hægindastól með fótskemli, til að sitja í við sjónvarpsgláp og annað slugs, prófa nýjar og spennandi
matar- og bakstursuppskriftir, koma sér upp nokkrum áhugamálum - og síðast en ekki síst leggjast annað
veifið í notalegt afslöppunarbað.
Í stuttu máli, ekkert meinlæti í minni elli, takk !
|

Heilsuefling ehf
Besta alhliða heilsufarssíða sem ég hef rekist á. Fræðsla um nánast allt sem við kemur viðhaldi
skrokksins og ekki veitir af, því það er nú ekki eins og almættið - hver og hvar sem það nú er - sé svo
rausnarlegt að skaffa manni nýjan skrokk, þegar sá gamli fer að striðna og slitna. Svo eru líka gefnar ráðleggingar um hvernig á að
velja sér gott rúm og góðan stól og tenglar á gönguleiðir og göngukort, svo fátt eitt sé nefnt.
Svo er það andlega næringin og jákvæðu hliðarnar:
Átta sig á kostum þessa að muna ekki hvar maður lét gleraugun, lyklana, símann og annað
lauslegt sem alltaf er að týnast, því þá þarf að æða um allt hús og leita - mjög gott trimm.
Átta sig á kostum þess að muna hvorki hvað maður hefur verið að lesa eða horfa á í sjónvarpi. Þá er alltaf
jafngaman að lesa sömu bókina aftur og aftur og horfa á sömu (endursýndu) myndina aftur og aftur...
Og síðast en ekki síst, átta sig á að hláturinn lengir kannski ekki lífið en gerir það skemmtilegra því um
að gera að halda brosvöðvunum í góðu formi og nota þá oft. Nokkrar brosæfingar.
Fáeinar vefsíður fyrir og um eldri borgara:
Endeavor Web, áströlsk eldri borgara síða.
Félag eldri borgara, í Reykjavík.
Old folks at home on the World Wide Web, útleggst
sem hagvön gamalmenni á netinu eða hvað ?
SeniorsCan, kanadísk eldri borgara síða.
Skandinaviske SeniorSider © 50+, skandinavísk eldri borgara síða.
Stafganga, fróðleikur og leiðbeiningar.
Vefur eldri borgara, margvíslegur
fróðleikur fyrir okkur sem komin erum til vits og ára.
|
|
|