|
Textíl(val)
fyrir 9. og 10. bekk eftir
|
||
|
Qracy Quilt Kynning - Efni - Aðferð - Niðurstaða
Qracy Quilts er ein tegund bútasaums sem hefur orðið vinsæl hin seinni ár. Þessi aðferð er ævagömul og felst í því að nýta hvern bút af efni sem til er og sauma þá saman. Þannig urðu til teppi og ábreiður. Þannig að í dag eru til mörg teppi sem eru orðin meira en 100 ára og eru enn notuð. Fyrr á öldum voru teppi oft notuð sem einangrun innandyra(hengd upp um alla veggi). Á seinni hluta 19. aldar var hægt að fá sem flestar tegundir efna og varð þessi aðferð ekki síður vinsæl. Þá var öllu blandað saman og oft skreytt með útsaumssporum og blúndum. Einnig var stundum handmálað á stærri fletina.
Vélsaumur Byrjað er á því að sníða litla ferninga(ca.30x30cm). Þeir eru hafðir úr ódýru bómullarefni. Á þessa búta er svo sjálft mynstrið saumað. Klippt er af handahófi einn bútur og hann festur með títuprjóni t.d. á miðjuna(það er auðveldast). Þá er annar bútur settur á þennan bút, festur með títuprjóni(rétta á móti réttu) og þeir saumaður saman á einni hlið. Slétt úr bútnum(nú tveir fastir saman) og þriðji búturinn festur á. Hann er lagður á eina hlið munstursins sem hinir bútarnir hafa myndað og festur niður. Athuga þarf vel að leggja efnin þannig yfir hvort annað að ekkert gat eða op myndist. Þetta púsluspil heldur áfram þar til búið er að þekja bómullarefnið(30x30cm). Þá er stykkið straujað á röngunni og zikzakkað. Allt er saumað í saumavél. Útsaumur/Blúndur/Málun Þegar búið er að sauma hvern bút fyrir sig í saumavél er hægt að skreyta hann. T.d. með útsaumi, blúndum og/eða handmálun. Frjáls útsaumur er notaður. Venjan er að sauma í alla saumana(samskeyti bútanna) og festa líka blúndu í saumana. Oft eru notaðar litlar blúndumyndir til að skreyta stærri fletina. Hægt er líka að sauma út í þá eða handmála þá. Allt gert eftir smekk hvers og eins. Klikkaðu á orðið útsaumur og þá færðu upp vefsíðu með ýmsum gerðum af útsaum. Frágangur Til að vinna teppi þarf að sauma marga svona ferninga. Þeir eru síðan festir saman. Það er best að gera með því að sauma þá saman í lengjur og festa lengjurnar svo saman. Þá er saumað utan um teppið nokkurskonar rammi. Sniðnar eru til lengjur sem eru jafnlangar og teppið er(bútarnir saumaðir saman). Þær saumaðar á teppið(rétta á móti réttu). Því næst eru sniðnar tvær lengjur sem eru jafnbreiðar og teppið er orðið(ath. hér er búið að bæta lengjunum við hliðarnar) og þær saumaðar á. Gætið ykkar á því að sníða ekki allar lengjurnar í einu. Einnig er hægt að vinna púða, dúka, renninga og hvað eina sem manni dettur í hug. Alltaf er sama aðferðin notuð.
Verkefnið er metið út frá faglegri vinnu. Einkunn er gefin í lokin.
© Elínborg Sigurðardóttir 31-May-2002 |
||