Umhverfið
Útsýni
Útsýni yfir Djúpavog og nágrenni frá Bóndavörðu sem er staðsett á klettum austan við Djúpavog. Þaðan er mjög gott útsýni til allra átta. Klikkaðu á myndina til að stækka hana. Efri myndin er tekin í desember en hin í júlí.
|
|
|
|
Búlandstindur
Fjallið Búlandstind þarf vart að nefna en það er eitt formfegursta fjall landsins. Búlandstindur er myndaður úr basaltlögum sem hvert ofan á öðru mynda eins konar pýramída sem nær upp í 1069 metra hæð.
Austur af Búlandstindi gengur fjallsrani, Goðaborg, og er sagt að þangað upp hafi menn burðast með goð sín strax eftir kristnitökuna til þess að steypa þeim fram af fjallsgnípunni.

Smábátahöfnin
Smábátahöfnin á Djúpavogi er rétt við bæjardyrnar að Hótel Framtíð. Fjöldi smábáta er gerður út frá Djúpavogi og því alltaf mikið líf við smábátahöfnina.

.jpg)
.jpg)