..notalegt hótel við voginn
Business picture

Hótelið

Svefnaðstaða

Hótelið hefur til umráða 42 herbergi. 18 herbergi búin öllum helstu þægindum, baðherbergi, síma og sjónvarpi. Einnig býður hótelið uppá 24 herbergi með handlaug. Mjög góð aðstaða fyrir svefnpokahópa. Sturtur og sauna eru í kjallara gamla hússins.


Veitingasalir

Hótelið býður uppá þrjá veitingasali. Nýr veitingasalur sem tekur 250 manns í sæti, gamli veitingasalinn sem tekur um 40 manns í sæti og á bar hótelsins tekur 50 manns í sæti. Mjög fjölbreyttur og góður matseðill er í gangi yfir sumarmánuðina. Sérstök áhersla er lögð á sjávarrétti úr glænýjum fiski, helst frá fiskimönnum staðarins.

salur

 

Sumarhús

Fjögur sumarhús eru á lóð hótelsins.

 

Íbúðir

Við erum með 3 íbúðir til leigu

Bar

Bar er í kjallara hótelsins og tekur hann 50 manns í sæti. Þar er hægt að fá bjór úr krana ásamt léttum og sterkum vínum. Einnig er hægt að bera fram mat á barnum

bar

Starfsfólk

Starfsfólk okkar er vingjarnlegt og lipurt og gerir sitt besta til þess að gestum okkar geti liðið vel á meðan á dvöl þess stendur í þessu fallega fjalla- og fjarðahéraði.

Hjá okkur

  • .. eru 42 herbergi.
  • .. eru 3 veislusalir
  • .. er bar sem tekur 50 manns í sæti

Um okkur

Hótel Framtíð
Vogalandi 4
765 Djúpivogur

Sími: (354) 478 8887
Fax: (354) 478 8187
Netfang: framtid@simnet.is