Feršalög

Ferðalög - RLR á ferð og flugi

Stutt heimsókn til Akureyrar.

Leiðin norður.

Farið var til Akureyrar í nóvember 1998. Dagurinn farinn að styttast, svo við fórum snemma af stað rétt eftir sólarupprás, um níu leitið. Veðurspáin var mjög góð fyrir norðan, en hefði getað verið betri sunnanlands. RLR į leiš til Akureyrar En eftir að hafa talað við veðurfræðing þá var ljóst að veðrið myndi haldast, skýjað og smá rok við Reykjavík og Reykjanesskaga, en mjög gott veður á Akureyri og á öllu norðurlandi. Við ákváðum að drífa okkur af stað. Veðrið reyndist vera ágætt og fyrir utan smá ókyrrð í Hvalfirðinum þá vorum við komin til Akureyrar á rétt rúmum klukkutíma. Strax norður af Langökli var útsýnið orðið frábært og ljúft að sigla um í kyrru loftinu. Sólin var lágt á lofti þrátt fyrir að miðjum degi væri að líða og gaf það fjöllunum skugga sem jók á dýptina mikið. Þunn snjóhula lá yfir velflestum Eyjafirðinum, og var tekinn myndarlegur hringur yfir Akureyri áður en inn til lendingar var komið.Eyjafjöršur framundanAðflugið inn í Eyjafjörðin var gott, ekki til ský á lofti og skyggnið nánast eins langt og augað eygði. Fjörðurinn opnaðist upp í skemmtilegum ljósbláum bláma.
Ekki laust við hugsanir um það frelsi sem flugið gefur okkur - þótt manninum hafi aldrei verið ætlað að fljúga, eða að minnsta kosti ekki lárétt.
>

Til baka á forsíðu

Næsta síða >

This document maintained by flying@isholf.is.
Material Copyright © 1998 Hörður Sverrisson