Bros

Doddi




Yfirlit

Gagnasíðan
Hver og hvað

Ég er áhugamaður um ættfræði, en húsasmiður að iðn og stunda nú sjó.

Helsta áhugamál mitt eru ættir undir Jökli á Snæfellsnesi. Líttu á gagnasíðuna mína til að fá nánari útlistun á því sem ég er að fiska eftir.

Undanfarin ár hef ég verið að skrá ættir mínar. Hef ég notið aðstoðar ýmissa manna og einnig bóka og blaðagreina. Ég veit hins vegar, að það er mikið af fólki sem gæti aðstoðað mig og látið mér í té ættfræðiupplýsingar.

Nú er ég að óska eftir aðstoð þeirra sem lesa þetta.

Sú ætt sem ég er aðallega að skrá er frá Bjarnarfossi í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Það er afkomendur Árna Ólafssonar f. um 1740 og Margrétar Gísladóttur f. um 1740.

Þau voru búandi á Bjarnarfossi frá um 1765 - 1806. Þetta er langur tími og eru þeirra börn fædd þar. Það er því ekki úr vegi að kalla þessa ætt Bjarnarfossætt, og er það nafnið sem ég nota á þessa ætt.

Ekki er mikið vitað um þessi hjón, en Árni kemur fyrir í nokkrum niðjatölum, þar sem rakið er að honum. Um foreldra þeirra er ekkert vitað. Það sem ég reikna með að fólk viti sem er á vefnum, er hverjir er afkomendur þeirra sem fæddir eru um síðustu aldamót og fram til okkar daga.

Ég mun leitast við að birta nöfn þeirra og óska eftir upplýsingum frá ykkur.

Það sem ég er að leita að er: nafn, fæðingardagur-og staður, dánardagur-og staður, hvort fólk er gift og giftingardag, starfsheiti, búsetu og börn og maka þeirra.


| Yfirlit | Gagnasíðan |



Þórður Árnason
Borgarholtsbraut 63A
200 Kópavogur
Sími: 554-5564
SindSoft höfundarréttur