![]()
| Selma Björnsdóttir
er fædd í tvíburamerkinu; 13.júní 1974.
Hún ólst upp í Árbænum og síðar
Garðabæ í hópi fjögurra systra, sem allar
hafa lagt fyrir sig söng eða dans: Guðfinna(21) dansari (lék
reyndar með Selmu í Grease), Hrafnhildur(27) óperusöngkona
og Birna(29) dansari.
Selma kom fyrst fram í Örkinni hans Nóa í Íslensku óperunni þegar hún var 10 ára og árið eftir söng hún í óperunni Carmen og lék í Kardimommubænum í Þjóðleikhúsinu. Reyndar steig hún enn fyrr á svið, sem álfadís í Öskubusku, barnakórinn í Garðabæ flutti hana. Hún var í honum í 6 ár, til 12 ára aldurs. Eftir grunnskólann fór Selma í Verzló. Þar hafði hún sig lítið í frammi; samdi reyndar dansa fyrir eitt nemendamótið, en sló rækilega í gegn og sigraði í Verzlóvælinu árið 1993 (vinkona sem hafði heyrt hana syngja í sturtu skráði hana til keppni!).Þar með var hafinn ferill söngkonunnar Selmu Björns, en hún söng m.a. með hljómsveitinni Fantasíu í tvö ár. Árið 1995 kom
stóra tækifærið. Þá fékk Selma
hlutverk Rósalíu í uppfærslu Þjóðleikhússins
á West Side Story og eftir það varð ekki aftur snúið.
Síðan hefur hún leikið og samið dansa og stjórnað
þeim í fjölda söngleikja í stærstu
leikhúsum Íslands, t.d. Rocky Horror Show (Colombia, þar
fór hún sífellt um sviðið á línuskautum,
söng og dansaði),
Starfsmenn Sjónvarpsins
höfðu samband við Selmu og buðu henni að
23.maí 1999, héldu
Selma, Daníel, Brynjar, Rúna, Hansa, Stefán, Björk
besta vinkona Selmu, systir hennar og pabbi hennar, ásamt
fulltrúum Sjónvarpsins, Skífunnar, blaðamönnum
og blaðafulltrúum áleiðis til Jerúsalem en
Rúnar Freyr unnusti hennar Selmu kom seinna vegna þess að
hann þurfti að leika í RENT.
Selma vakti mikla hrifningu fjölmiðla og umboðsmanna plötu"risa" þegar hún kom fram í Ísrael. Mörg þekkt erlend fyrirtæki leituðu samninga við hana eftir söngvakeppnina. Núna hefur hún gert samning við einn stærsta plötuútgefanda í heimi sem hljóðar upp á 3 geisladiska á 3 árum. Í byrjun nóvember kom fyrsti diskur Selmu út, I am, og seldist hann í uþb. 10.000 eintökum.(Ég mæli eindregið með honum). Aðaláhugamál
Selmu, auk þess að syngja, leika og dansa, eru
Eftirlætis:
|
Samantekt:
Elísa
Arnarsdóttir 1999