Þjónusta

  • Safnið er almenningsbókasafn sem þjónar almenningi og skólum í Ólafsfirði.
  • Upplýsingaþjónusta - millisafnalán

  • Auk þess að lána út bækur og tímarit, veitir safnið upplýsingaþjónustu og útvegar efni með millisafnalánum ef með þarf.
     
  • Hljóðbækur

  • Safnið lánar út eigin bækur á hljóðsnældum auk þess sem það útvegar  hljóðbækur frá Blindrabókasafni fyrir þá sem ekki geta lesið sökum sjóndepru eða aldurs.
     
  • Bókin heim

  • Boðið er upp á heimsendingaþjónustu til aldraðra.
     
  • Skipakassar

  • Einnig eru lánaðir bókakassar í skip sem gerð eru út frá Ólafsfirði.
     
  • Internetið

  • Lánþegar eiga kost á að fá aðgang að Veraldarvefnum á bókasafninu gegn vægu gjaldi.

    Til baka á aðalsíðu