Skipulagning og stjórnun verkefna og viðburða

Ég hef í gegnum tíðina öðlast mikla reynslu í skipulagningu og stjórnun verkefna og viðburða. Ég hef reynslu af hugmynda- og verkefnavinnu, áætlana- og dagskrárgerð, skipulagningu uppákoma innan- og utanhúss starfsmannahaldi og af útgáfu- og kynningarmálum. Ég er félagi í óformlegum félagsskap ofurrótara sem kallar sig Skytturnar.

Ég býð sveitarfélögum, stofnunum, fyrirtækjum og einstaklingum upp á eftirfarandi þjónustu:
  • Hugmyndavinnu, skipulagningu og framkvæmd verkefna, uppákoma og viðburða
  • Dagskrárgerð á skemmtunum, menningarviðburðum eða öðrum uppákomum
  • Hönnun á útliti sýninga eða viðburða, skreytingum eða kynningarefni
  • Ráðgjöf til skipuleggjenda viðburða um tæknimál, búnað eða dagskrá
  • Kynningu á viðburðum, gerð fréttatilkynninga, auglýsinga eða annars kynningarefnis
  • Hönnun, textagerð, ritstjórn og uppfærslu á vefsíðum
  • Úttekt á viðburðum sem eru á framkvæmdastigi, ráðgjöf, þarfagreiningu, verklýsingar og gátlista, þar sem aðrir sjá um framkvæmdina
Ekkert verkefni er of stórt - eða of smátt

Ísbrjótur |  Verkefnisstjórn |  Námskeið | Starfsferill | Listrænn ferill | Sendið mér póst |  Aftur á forsíðu