Að virkja hugvit Á góðum dögum er því oft hampað að í hugvitinu sé framtíð okkar falin. Gott og vel, það má rétt vera, en það hefur láðst að segja okkur hvaðan allt þetta hugvit á að koma. Er hugvit kannski einhver náttúrukraftur sem er eðlislægur í Íslendingum og hvernig á þá að virkja hann? Ekki veit ég hvort þeir stjórnmálamenn sem hæst hafa um hugvitið hafi einhverjar áætlanir um hvernig á að fara að en ég hef allavega ekki frétt af því. Hinsvegar hef ég verið að viða að mér aðferðum um hvernig sköpunarkraftur er markvisst ræktaður í fólki og búa til nýjar. Aðferðir þessar stefna að því að skapa nýjungar, auka gæði, finna nýjar lausnir og skerpa framtíðarsýn. Skipulögð vinnubrögð Nánast öll verkefni lúta sömu eða svipuðum lögmálum. Þau skiptast í eftirfarandi meginþætti: Skilgreining, skipulagning, fjármögnun, kynning, framkvæmd og uppgjör. Í atvinnuumhverfi nútímans verður verkefnavinnan æ algengari og mikilvægari og því er þjálfun og reynsla af henni nauðsynleg öllum. Skipuleg vinnubrögð og skrásetning reynslu og þekkingar kemur í veg fyrir að stöðugt þurfi að vera að finna upp hjólið í fyrirtækjum, félögum og stofnunum. Námskeið fyrir þig og þína Viltu virkja sköpunarkraft starfsfólksins betur? Þarfnast fyrirtæki þitt eða stofnun nýjunga eða endurbóta. Tapast þekking og verkreynsla í félaginu vegna mikilla útskipta í stjórninni? Viltu vinna á móti stöðnun og vanahugsun og bæta samkeppnisstöðu þína? Frá árinu 1993 hef ég haldið námskeið í verkefnavinnu, hugmyndavinnu og skapandi hugsun. Þú getur kynnt þér námsefnið, það er á Ísbrjótnum. Námskeiðin eru sniðin eftir þörfum þeirra sem þau eru haldin fyrir og því er verið að vinna að raunverulegum viðfangsefnum þeirra. Sendu mér póst og lýstu þörfum þínum og ég mun gera þér tilboð. |