| FRÁ HUGMYMYND TIL FRAMKVÆMDAR - VERKEFNAVINNA |
| Orð eru til alls fyrst og kveikja
allrar framkvæmdar er hugmynd. Þegar góð hugmynd
kviknar er hægt að setjast niður og ræða hversu
framkvæmanleg hún er og hvernig að framkvæmdinni skal
staðið. Þetta ferli, frá hugmynd til framkvæmdar, er
það sem hér er kallað verkefni. (Sjá nánar um
aðferðir hugmyndavinnunnar í Frá hugmynd til framkvæmdar -
hugmyndavinna) Verkefni er framkvæmd sem afmarkast af tíma og hefur ákveðna lýsingu og tilgang. Það hefur upphaf og endi og getur staðið eitt sér eða verið þáttur í starfi fyrirtækis, stofnunar eða samtaka. Ef starfseminni allri er líkt við haf er verkefnið eins og eyja. Í starfi fyrirtækis gæti einstakt verkefni verið söluherferð, í starfi félags gæti það verið árshátíðin. Flest verkefni verða til vegna einhverrar þarfar í starfinu. Yfirleitt er þeim ætlað að breyta ástandi og auka gæði starfseminnar. Þeim getur verið ætlað að koma á samstarfi enda er samvinna best til þess fallin að sameina marga mismunandi aðila. Það er stofnað til verkefna til upplýsingar, til skemmtunar, í forvarnaskyni eða hreinlega í ábataskyni. Í grófum dráttum má skipta öllum verkefnum í þrjá hluta: Undirbúningur, framkvæmd og uppgjör. Undirbúningsstigið skiptist í: Hugmynd sem er kveikjan að verkefninu, hana þarf að skilgreina og út frá þeirri skilgreiningu þarf að skipuleggja verkefnið. Á framkvæmdastiginu þarf að fjármagna verkefnið og kynna það fyrir þátttakendum og njótendum og að framkvæma. Í uppgjöri er framkvæmdin metin með tilliti til þess hvernig tókst og til framhaldsaðgerða. Þessum meginflokkum eru gerð nokkur skil í þessu riti og í því er kynnt verklag í verkefnavinnu sem í raun má yfirfæra yfir á hvaða verkefni sem er. Einnig er mögulegt rit þetta gagnist þeim sem hafa áhuga á að hefja einhverja starfsemi, stofna til rekstrar eða eitthvað þessháttar.
|