| SKAPANDI STARF |
|
Það er í sjálfu sér auðvelt að setjast niður á hugflæðifundi og velta sér upp úr hugmyndum því þá er markmiðið hreint og klárt og gefinn er sá tími sem nauðsynlegur er til að vinna að sköpun. Það er erfiðara að halda sköpuninni við í starfinu frá degi til dags því alltaf eru einhverjir aðkallandi hagnýtir hlutir sem þarf að sinna og þeir virðast í amstri dagsins meira aðkallandi heldur en hugmyndavinnan. Þar fyrir utan finnst mörgum starfsmönnum það ómannúðlegt að það séu gerðar kröfur um að þeir hugsi í vinnutímanum. Þessi kafli fjallar um nokkrar aðferðir til að beisla sköpunarkraftinn í daglegu starfi. Til að einfalda málið mætti segja að flestar aðferðirnar fjalli um að leika sér í vinnunni sem sjaldnast hefur verið talin góð latína á íslenskum vinnustöðum. En í leiknum felst sköpunarkraftur og ef starfsfólkið fær að leika sér dálítið í vinnunni má búast við því að það verði ánægðara. Ánægt starfsfólk afkastar meiru. Ein á dag (kemur öllu í lag) Biddu alla um að reyna að endurbæta einn þátt í starfinu á dag með áherslu á þá málaflokka sem þeir hafa yfir að segja. Í lok dags hittast allir og og fá að heyra hvað hinir hafa gert öðruvísi og betur en áður. Hugflæðitafla Settu upp töflu miðsvæðis og hvettu fólk til að nota hana fyrir hugflæði. Skrifaðu þema eða viðfangsefni á litaðan pappír og festu á miðja töfluna. Hafðu nægan pappír við höndina svo fólk geti skrifað niður hugmyndir sínar og fest á töfluna. Setjum sem svo að þú eigir í erfiðleikum með að finna samstarfsaðila til að vinna að ákveðnu verkefni. Þú gætir lýst þörfum þínum og væntingum á lituðu blaði, sett það á hugflæðitöfluna og beðið fólk um tillögur og hugmyndir. (kynntu þér Minnismiðaaðferðina) Hugmyndahappdrætti Efndu til mánaðarlegs hugmyndahappdrættis og notaðu númeraða miða. Í hvert skipti sem einhver kemur með góða hugmynd fær hann miða. Í lok hvers mánaðar kynnir þú allar hugmyndirnar fyrir samstarfsfólki þínu og dregur í happdrættinu. Ef númer einhvers kemur upp fær hann vinning. Ef enginn vinnur tvöfaldast verðlaunin í næsta mánuði. Kubbahorn fyrir hugmyndir Afmarkaðu svæði þar sem fólk getur hugsað skapandi, lítið leikhorn fyrir fullorðna. Komdu upp bókasafni um hugmyndavinnu, myndböndum, alnetsaðgangi, leikjum, leir, litum og öðru því sem hvetur fólk til að vera skapandi. Skreyttu svæðið með myndum og listaverkum og hafðu hornið öðruvísi en annað umhverfi vinnustaðarins. Nýtt umhverfi Oft getur það verið til bóta að skipta um umhverfi þegar þarf að vinna að nýjum hugmyndum, komast burt frá argaþrasi hversdagsins, hringjandi símum og öðru sem stöðvar hugsanaferlið. Hugflæði fjarri heimaslóðum er aðferð til að brjóta upp hið venjubundna starf, til að hittast undir öðrum kringumstæðum til að vera skapandi. Það er hægt að fara í stutt ferðalag, borða saman hádegisverð, fara í heita pottinn eða í lautarferð á sólríkum degi. Markmið slíkra uppákoma verður þó að vera alveg skýrt, annaðhvort afmarkað viðfangsefni eða almennar endurbætur á starfinu. Hugmyndabókin Gefðu öllum minnisbók til að skrifa niður góðar hugmyndir. Kallaðu bókina Hugmyndir á heimsmælikvarða eða Einstæðar og æðislegar hugmyndir eða einhverju öðru hvetjandi nafni. Biddu alla að skrifa þrjár hugmyndir í bókina á hverjum degi í mánuð um hvernig hægt sé að bæta starfið. Safnaðu bókunum saman í lok mánaðarins og flokkaðu hugmyndirnar fyrir frekari umræðu. Kímnigáfa Ég fékk stöðuhækkun í dag. Ég er svo duglegur að moka. Nú? Hvað fékkstu? Stærri skóflu! Flestir vinnustaðir þróa sérstaka brandara þar sem inntakið er andstætt því sem staðurinn stendur fyrir eða stefnu hans. Kímni er leið til að koma að gagnrýni og tilfinningalegri afstöðu án þess vera særandi. Kímni er öryggisventill ef fólk er undir álagi, hún er leið til að gera störf léttbærari. Kímni er leit að sannleikanum því með henni er hægt að segja það sem ekki má segja. Búið til skopmynd af verkefninu og gerið grín að því. Reynið að finna hlægilega fleti á viðfangsefninu og hæðist að því. Snúið alvarlegum hlutum uppí alvörulaust og óábyrgt grín. Í kímnigáfu liggur óbeislaður sköpunarkraftur í tonnatali. Vika heimskulegra hugmynda Verið skapandi á skemmtilegan hátt. Haltu Viku hinna heimskulegu hugmynda, samkeppni um heimskulegustu hugmyndina. Settu hugmyndir sem berast upp á töflu og hafðu dómnefnd og verðlaunaafhendingu í Óskarsverðlaunastíl þar sem sigurvegararnir fá verðlaun og þakka maka sínum, mömmu sinni og hundinum sínum fyrir þann árangur sem þeir náðu. Af þessu gæti orðið hin besta skemmtun og þið munið komast að því að heimskulegar hugmyndir eiga það til að geta af sér góðar hugmyndir. Hugmyndakvótar Aðferð Edisons til að halda uppi framleiðni var að hafa hugmyndakvóta fyrir sig og aðstoðarmenn sína. Kvóti Edisons var lítil upfinning á tíu daga fresti og stór upfinning á sex mánaða fresti. Leið til að halda uppi sköpunarkrafti væri að gefa öllum hugmyndakvóta t.d. fimm hugmyndir á viku. Aðgöngumiði Farðu fram á að allir komi með eina nýja hugmynd á hvern fund sem er haldinn. Hugmyndin á að tengjast verkefnum viðkomandi og miða að auknum gæðum í starfinu. Breyttu "Já, en…" í "Já, og…" Ef einhver kemur með hugmynd freistumst við oft til að segja: "Já, en…" og draga fram einhverjar neikvæðar hliðar málsins eða útmála allar þær hindranir sem eru í veginum. Til að breyta þessu hugarástandi er hægt að fara fram á að þegar einhver segir "Já, en.." að hann breyti því í Já, og…" og haldi áfram þar sem sá sem hafði orðið hætti. Glöggt er gests augað - Nýtt sjónarhorn Til að fá fram nýjar hugmyndir getur það gefist vel að kalla til fólk sem kemur að viðfangsefninu án þess að hafa neinar skoðanir á því fyrirfram. Það er öruggt að sýn þess er öðruvísi en sérfræðinganna og hagsmunaaðilanna. Bjóddu fólki úr óskyldum greinum á hugflæðifundi þína og spurðu það hvernig það myndi takast á við viðfangsefnin. Hvernig leysir ljóðskáldið spilliefnavanda efnaverksmiðjunnar? Hvernig vill veðurfræðingurinn bæta lélegan liðsanda hjá fyrirtækinu? Eigin aðferðir Búðu til þínar eigin aðferðir til að halda sköpunarkraftinum við. Ef sköpunarkrafti á þínum starfsstað hefur ekki verið veitt í neinn farveg gæti fyrsta skrefið verið skapandi hugmyndavinna um það hvernig þið getið verið skapandi. Hugmyndabanki Hentu aldrei hugmynd. Geymdu allar hugmyndir í sérstökum hugmyndabanka. Það kemur alltaf sá tími í starfinu að allir eru orkulausir og hugmyndasnauðir og þá er gott að geta farið í bankann. Láttu innistæðuna í hugmyndabankanum vaxa og ávaxtast en það gerir hún einungis ef það er farið í gegnum hugmyndirnar reglulega. Margar góðar hugmyndir þurfa að gerjast í nokkurn tíma til að ná réttum þroska og styrkleika. En það þarf að sinna þeim og þær mega ekki gleymast og rykfalla. Þakka þér fyrir þessa stórkostlegu hugmynd! Sýndu að þú virðir hugsanir fólks og hugmyndir, jafnvel þær sem virðast ónothæfar. Mundu að neikvæðni er örugg leið til að drepa löngun fólks til að vera skapandi. Gleymdu ekki að þakka fyrir hugmyndir annarra með einhverju móti t.d. með sérstöku þakkarkorti eða einhverri umbun. |