Nýsköpun og hagnýting þekkingar. Í endurskoðaðri aðalnámskrá grunnskóla er lögð áhersla á frumkvæði og sköpun. Athafna- og frumkvöðlamennt er vefur um fjögurra ára norrænt þróunar- og samstarfsverkefni skóla á Norðurlöndum.
Börn og hugmyndir Hugvísir er hugmyndasamkeppni ungs fólks í vísindum og tækni. Nýsköpun í iðnaði. Nýsköpunarþáttur fræðsluvefs Samtaka iðnaðarins. [Til baka]
Impra er miðstöð upplýsinga og leiðsagnar fyrir frumkvöðla og lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi. Hjá Impru er á einum stað hægt að leita aðstoðar um allt sem við kemur viðskiptahugmyndum og almennum rekstri fyrirtækja. Impra aðstoðar frumkvöðla og lítil og meðalstór fyrirtæki við að afla áhættufjármagns til verkefna sem stuðla að nýsköpun í íslensku atvinnulífi og er leiðandi í mótun stuðningsverkefna fyrir konur í atvinnurekstri. Impra starfrækir Frumkvöðlasetur á Iðntæknistofnun til stuðnings frumkvöðlum og framgangi nýrra hugmynda. Þar er mögulegt að fóstra níu ný fyrirtæki sem byggja á sérstöðu og nýsköpun. Aðstoðað er við stofnun fyrirtækjanna og rekstur þeirra í allt að fimm ár. Nýsköpunarsjóður veitir frumkvöðlum og uppfinningamönnum víðtæka handleiðslu í þróun viðskipta- og vöruhugmynda þannig að þær endi annaðhvort í markaðshæfri vöru eða þjónustu eða stofnun fyrirtækis. Þjónustunni er ætlað að styðja nýjar hugmyndir og leiðbeina hugmyndasmiðum inná réttar brautir strax á hugmyndastigi. Atvinnumálafulltrúar og atvinnuþróunarfélög víðs vegar um landið veita frumkvöðlum ráðgjöf og stuðning. Listi yfir vefsíður þeirra er í þætti Ísbrjóts um atvinnulíf [Til baka] |
|||
Aflvaki hf. vinnur að nýsköpun og nýmælum í atvinnulífi á höfuðborgarsvæðinu með fjárfestingarþátttöku yfirleitt í formi hlutafjárkaupa. Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins styður nýsköpunarhugmyndir einstaklinga og smærri fyrirtækja með því að veita styrki og áhættulán til nýnæmisathugana, einkaleyfisumsókna, hönnunarverndar, viðskiptaáætlana, hagkvæmniathugana, þróunar og prófana.
Rannsóknarráð Íslands
veitir ýmsa styrki til nýsköpunar: Snjallræði
er verkefni til að hvetja einstaklinga til að leggja
fram nýjar framleiðsluhugmyndir í samkeppni þar sem
í allt sextán hugmyndir eru valdar til
hagkvæmniathugunar og átta af þeim valdar til
fullnaðarhönnunar og frumgerðarsmíði og getur
hugmynd hlotið styrk í báðum áföngum.
|
|||
Upp úr skúffunum er samstarfsverkefni Rannsóknaþjónustu Háskólans og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Tilgangur verkefnisins er að hvetja starfsmenn Háskóla Íslands til að velta fyrir sér möguleikum á því að nýta niðurstöður rannsókna og verkefna sem unnin hafa verið við skólann og er markmiðið að nýsköpun við Háskólann verði sýnilegri. Verkefnið felur í sér hvatningu, aðstoð og samkeppni þar sem hugmyndir og rannsóknaniðurstöður eru lagðar fram og skoðaðar af dómnefnd sem skipuð er einum fulltrúa frá Nýsköpunarsjóði, einum frá Rannsóknaþjónustunni og einum frá Háskóla Íslands. Veitt eru verðlaun í þessari samkeppni og nemur verðlaunaféð einni milljón króna. Skilafrestur umsókna er til 15.nóv. 1999.
|
|||
Nýsköpun í gagna- og fjarvinnslu á landsbyggðinni. Á vef Iðntæknistofnunar er þessi skýrsla á pdf-formi. Umhverfisvænni farkostir. Rafmagn, vetni og gas - Nýir valkostir í flutningum og samgöngum. Ráðstefna í Ráðhúsi Reykjavíkur 20. nóvember 1998. Nýtt vetnisfélag stofnað hér á landi með þátttöku Shell International, Norsk Hydro og DaimlerChrysler. Markmiðið er að Ísland verði fyrsta vetnissamfélag heims.
|
|||
| |||
|
Samantekt um hindranir við nýsköpunarstarf fyrirtækja - Verslunarráð Íslands og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins. Pdf-form. Starfsskilyrði frumkvöðla á Íslandi - Samtök iðnaðarins. Geta fræðingar verið frumkvöðlar? - Gylfi Magnússon, dósent, viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. |
|||
Þessi síða er enn í smíðum. Allar ábendingar eru vel þegnar.
|