Kraftmikil börn

0heartline1f.gif (3286 bytes)

Hvað eru kraftmikil börn?

Hvað eru kraftmikil börn? Kraftmikil börn eins og ég kýs að kalla þau eru venjuleg heilbrigð börn sem eru fædd með erfiða skapgerð. Margar rannsóknir hafa verið gerðar á skapgerð barna en frægust er líklega NYLS eða New York Longitudinal Study, frá 1956. Rannsókninni stjórnuðu sálfræðingarnir og hjónin Dr. Alexander Thomas og Dr. Stella Chess ásamt Herbert Brirch. Þau fylgdu eftir 133 börnum frá fæðingu og fram á fullorðinsár. Rannsókn þeirra leiddi í ljós að flokka má meðfædd skapgerðareinkenni, sem allir einstaklingar hafa, í 9 mismunandi einkenni. Skapgerð flestra barna fellur í meðallag þessara einkenna en rannsóknin sýndi að 10-15% allra barna eru fædd með erfiða skapgerð. Þessi börn eru alveg jafn eðlileg og jafnaldrar þeirra, þau eru bara mun erfiðari í uppeldi og foreldrar þeirra efast oft um ágæti sitt sem uppalendur þegar ekkert sem þeir reyna virðist virka til að aga barnið og breyta hegðun þess. En staðreyndin er sú að foreldrar breyta ekki skapgerð barnsins en þeir geta breytt því hvernig þeir koma fram við það og hagrætt umhverfinu þannig að minna verði um árekstra í uppeldinu. Foreldrarnir verða að móta uppeldið eftir skapgerð barnsins, skoða og læra hvernig það bregst við hinum ýmsu aðstæðum. Kraftmikil börn eru oft sögð "óþekk eða illa upp alin börn" og foreldrar þeirra eru að fá endalaus ráð varðandi uppeldi barna sinna: "vertu strangari", "vertu ákveðnari", "ekki vera of ströng", "er barnið ekki ofvirkt eða misþroska?", "láttu athuga barnið" o.s.frv. En barnið er ekki ofvirkt eða misþroska. Kraftmikið barn er eðlilegt barn sem erfitt er að ala upp, það er uppeldisleg áskorun og sannarlega fyrirhafnarsöm Foreldrar kraftmikilla barna fyllast oft vanmáttarkennd og skilja ekki af hverju það sem virkaði svo vel á eldri systkini virkar bara alls ekki á þetta barn. En oftast eru foreldrar ekki að gera neitt rangt, galdurinn er bara að læra að greina merkin sem börnin gefa frá sér og koma í veg fyrir að allt fari úr skorðum, grípa inn í áður en skaðinn er skeður. Með því að horfa á barnið dálítið öðrum augum en áður og viðurkenna að það hafi ákveðna meðfædda skapgerðareiginleika sem valda því að það hagar sér dálítið "öðruvísi" en mörg önnur börn getum við betur tekist á við hegðun þess og hjálpað því og okkur að lifa saman í sátt og samlyndi. Nokkrar bækur hafa verið gefnar út sem fjalla um skapgerð og kraftmikil börn og vil ég helst mæla með, "The difficult child" og "Normal kids have problems too" eftir Stanley Turecki, og "Raising your spirited child" eftir Mary Sheedy Kurchinka. Einnig má finna á Internetinu fjölda síðna með upplýsingum um skapgerð og kraftmikil börn. Hver eru þessi 9 einkenni sem lýsa skapgerð kraftmikilla barna? Þessi 9 skapgerðareinkenni finnast hjá öllum einstaklingum, en kraftmikil börn hafa þau í ríkari mæli. Ekki þarf barn þó að hafa öll 9 einkennin í ríkari mæli en aðrir til að teljast kraftmikið. Fyrstu 5 einkennin, ákafi, þrautseigja, viðkvæmni, athygli og skortur á aðlögunarhæfni eru einkennandi fyrir nánast öll kraftmikil börn, en 4 síðustu einkennin eru svo kölluð "bónus" einkenni,sem sum en alls ekki öll kraftmikil börn, hafa í ríkari mæli. Þau börn sem hafa "bónus" einkennin eru oft erfið í uppeldi og sérstök áskorun fyrir foreldra sína. Öll falla þessi einkenni innan ramma þess sem talin eru eðlileg skapgerðareinkenni.

Einkennin eru:

1.Ákafi:
Mikill ákafi------------------------------------Lítil viðbrögð

Tilfinningahiti. Fólk tekur oft eftir því hve eftirtektarsamt ungabarnið er eða hve skýrt barnið sé. Á meðan venjulega barnið flissar að einhverju fyndnu þá mun ákafa barnið fá áköf hlátursköst. Þegar þau eru glöð eru þau alltaf brosandi, hlæjandi og syngjandi, en þegar þau eru leið eru þau örvæntingarfull og óhuggandi. Áköf börn verða auðveldlega oförvuð, og þegar þau eru upptrekkt missa þau oft stjórn á sér og lemja, bíta eða sparka af engri sýnilegri ástæðu. Þau skilja ekki sinn eigin tilfinningahita, t.d. hvers vegna þau tala svo hátt að mann verkjar í eyrun eða af hverju þau missa stjórn á sér vegna hluta sem virðast minniháttar fyrir aðra. Þau eru bara svona og það er okkar hlutverk að hjálpa þeim að skilja og meta ákafa sinn og kenna þeim hvernig þau geta stjórnað tilfinningahitanum í stað þess að láta hann stjórna þeim. Það er mikilvægt að geta lesið í hegðun barnsins og lært að þekkja merkin sem þau senda frá sér áður en allt fer í háaloft. Þannig getum við komið í veg fyrir að barnið missi stjórn á sér og kennt því að greina merkin þegar það er að missa stjórn á sér áður en það gerist. Markmiðið er að barnið læri að stjórna ákafa sínum og finni aðferðir til að róa sig niður og að nota orð til að lýsa tilfinningum sínum í stað hegðunar.

2. Þrautseigja:
Mikið úthald--------------------------------------Lítið úthald


Við metum þrautseigju mikils í okkar þjóðfélagi, og kraftmikil börn hafa hana svo sannarlega! Þau geta haldið sig fast við eitthvað í langan tíma, en þau hafa líka neikvæða hlið þrautsegju þ.e. þrjósku. Þau festa sig við ákveðnar hugmyndir og eiga erfitt með að losna út úr þeim. Þau geta ekki viðurkennt NEI sem endanlegt svar og biðja um sama hlutinn 20 sinnum í röð ef þau fá tækifæri til þess. Þau eru í eilífri valdabaráttu við umhverfi sitt og okkur foreldrana. Þá er gott að grípa til málamiðlana ef það á við. Við verðum að reyna að líta á aðstæður út frá skapgerð barnsins. Það lætur ekki svona af því það vill pirra okkur, oftast má rekja ástæðuna til skapgerðar barnsins, en það þýðir samt ekki að það verði ekki að fara eftir þeim reglum sem við setjum. Það er mikilvægt að hafa reglur og kraftmikil börn verða að læra að fara eftir reglum eins og önnur börn. Galdurinn er að setja sanngjarnar og skýrar reglur sem við eigum auðvelt með að framfylgja.

3. Viðkvæmni:
Ekki viðkvæm-----------------------------------Mjög viðkvæm


Lágur skynþröskuldur fyrir hávaða, ljós, tilfinningar, hita, bragð og fatnað. Kraftmikil börn eru líkamlega viðkvæm fyrir áreitum frá umhverfinu.Ljós mega ekki vera of björt, hljóð of há, föt of þröng eða valda smá kláða. Að klæða viðkvæmt barn er sérstök áskorun, skyrtur eru með miða sem klæjar undan, nærbuxur eru með teygju í mittið, og sokkar eru fullir af lóg og öðrum gildrum. Við foreldrarnir verðum líka að reyna að vega og meta hve mikilvægt það sé að barnið geri það sem við ætlumst til af því s.s. að það sé í tilteknum sokkabuxum eða sokkum sem virðast pirra það mjög mikið, skiptir það miklu máli hvort barnið sleppir sokkabuxunum ef því líður betur? Barnið er ánægðara og við líka að sleppa við klukkutíma þras og grátkast. Viðkvæm börn þola oft illa að vera innan um margt fólk t.d. í barnaafmælum, verslunum og fleiri stöðum þar sem mikið er um áreiti. Þegar farið er á slíka staði með viðkvæm börn er mikilvægt að lesa vel merkin sem börnin gefa frá sér þegar þau eru búin að fá nóg og "kast" er í uppsiglingu. Þá er gott að leiða barnið á rólegan stað þar sem minna er um áreiti og leyfa því að jafna sig, eða jafnvel fara bara heim. Með því að hagræða umhverfinu og taka tillit til viðkvæmni barnsins getum við komið í veg fyrir marga árekstra.

4. Athygli:
Mjög athugul--------------------------------------Utan við sig


Athugul börn taka eftir öllu í kringum sig. Þeim yfirsjást sjaldan hin minnstu smáatriði. Ef þú skreppur í ökuferð taka þau eftir óvenjulegustu hlutum í umhverfinu t.d. fugli sem situr hátt uppi í tré, regnboga, skýjum sem eru svo skemmtileg í laginu o.s.frv. Athygli þeirra veldur því að þau eru oft lengi að gera það sem þau eru beðin um því þeim dettur alltaf í hug að gera eitthvað annað í leiðinni, eða þau sjá eitthvað sem vekur athygli þeirra og gefur hugmyndaflugi þeirra lausan tauminn. Þó að athugul börn séu oft með hugann við eitthvað annað en það sem þau eiga að gera tekst þeim þó oftast að klára verkefnin sín. Þau skilja vel skilaboðin sem þau fá og geta unnið úr þeim, en þau þurfa bara endilega að gera svo margt annað í leiðinni!

5. Aðlögunarhæfni:
Aðlagast auðveldlega-------------------------Lengi að aðlagast


Kraftmikla barnið hefur litla aðlögunarhæfni. Breytingar, eitthvað óvænt, röskun á áætlun eða rútínu, fer illa í það. Barnið þolir illa breytingar, það getur t.d. fengið "kast" út af samloku sem er skorin í miðju þegar það bjóst við að fá hana skorna horn í horn. Það er ekki með neinar sérþarfir eða stæla, það á bara erfitt með að aðlagast breytingum eða óvæntum atburðum. Kraftmikil börn eru oft lengi að aðlagast nýjum aðstæðum og þurfa lengri tíma til að "hitna upp" og verða örugg. Það getur verið erfitt fyrir kraftmikil börn að nálgast önnur börn, eignast vini á eigin spýtur. Þá er mikilvægt að hjálpa þeim fyrstu skrefin á meðan þau eru að kynnast vininum og þegar þau eru orðin örugg, þá gengur allt vel. Kraftmikil börn eiga oft erfitt með að sýna/tjá tilfinningar sínar. Þau sýna t.d. ekki mikil viðbrögð þegar þeim er gefið eitthvað eða verða kannski reið og vilja ekki sjá nýja hlutinn og við höldum að þau séu vanþakklát. En þau eru það alls ekki, þeim er bara ekki eiginlegt að tjá gleði sína eða sýna tilfinningar sínar. Gefðu barninu tíma til að venjast nýja hlutnum/gjöfinni og vertu viss, eftir dálítinn tíma er barnið glatt og ánægt með hlutinn.


6. Regla:

Regla-----------------------------Óregla


Kraftmikil börn hafa oft óreglulegan líkamstakt. Nýjum foreldrum er oft sagt að þeir muni fljótt læra að greina á milli mismunandi gráts barnsins. En hjá foreldrum kraftmikilla barna er það ekki alltaf þannig, þar sem svefn- og næringarmynstur þessara barna er ekki reglulegt. Mörg vakna t.d. mjög snemma á morgnana, fara ekki á salernið fyrr en þau eru alveg í spreng, og mörg hver gleyma að borða og átta sig ekki á því að þau eru svöng fyrr en eftir marga klukkutíma. Þá eru þau orðin svo svöng að skapið kemst á versta stig og allt fer í háaloft. Það er því mikilvægt að passa upp á að þau borði reglulega.


7. Orka(Kraftur):
Orkumikill---------------------Hæglátur


Virkni stig. Sum (alls ekki öll) kraftmikil börn hafa endalausa orku. Þau eru á ferðinni frá morgni til kvölds, þau þurfa mikla hreyfingu og hafa líka mikla þörf fyrir að tala og jafnvel bara fyrir að búa til hljóð. Það er mikilvægt að viðurkenna þessa miklu hreyfiþörf kraftmikla barnsins og reyna að skapa aðstæður til að barnið fái útrás fyrir alla orkuna. Þetta einkenni spilar inn í mörg önnur einkenni t.d. barn sem er orkumikið og lengi að aðlagast hleypur um allt hús og snýr öllu á hvolf þegar einhver kemur í heimsókn, það er viðkvæmt og getur hagað sér á versta veg þegar mikil áreiti eru í umhverfinu o.s.frv. Ef okkur tekst að skapa aðstæður fyrir barnið til að fá útrás fyrir orkuna, gengur yfirleitt allt betur. Að vera orkumikill getur verið jákvæður eiginleiki þegar orkunni er beitt á jákvæðan hátt, t.d. í íþróttum, í leikjum, skóla o.s.frv. Þegar barnið eldist lærir það að beina orku sinni í jákvæðan farveg og fá útrás fyrir hana á annan hátt en með hegðun sinni.


8. Fyrstu viðbrögð:
Opinn----------------------------------------Til baka


Við nýju fólki, stöðum eða reynslu. Við nýjar aðstæður verða kraftmikil börn feimin og hanga í þér. Þau þurfa nokkrar mínútur til að hita sig upp. Spurðu kraftmikið barn já/nei spurningar og fyrsta svarið verður örugglega Nei! Sýnt hefur verið fram á með rannsókn að börn sem sýna þessi fyrstu viðbrögð sýna einnig ýmis líkamleg viðbrögð eins og hækkaðan blóðþrýsting, þanda augasteina og spennu í raddböndum. Viðbrögð þeirra eru því mjög raunveruleg, þeim líður illa við þessar aðstæður. Barnið sem neitar að fara ofan í sundlaugina í fyrsta tíma á sundnámskeiði er ekki að mótmæla til að ergja foreldrana heldur af því að því líður illa og á erfitt með að takast á við þessar nýju aðstæður. Fyrir kraftmikla barnið eru það mjög eðlileg fyrstu viðbrögð við nýju fólki, stöðum, reynslu eða mat að ýta því í burtu en með dálítilli hvatningu og þolinmæði munu þessi börn fást til að prófa nýja hluti. Við verðum bara að bíða þar til þau eru tilbúin og alls ekki þvinga þau.


9. Skap:
Skapgóður----------------------------------------Skapstyggur

Sumir kraftmiklir krakkar eru í eðli sínu glaðir og ánægðir persónuleikar, en önnur eru alvarleg, íhugul og skapstygg. Þau eru ekki að reyna að vera erfið, þau eru svona að eðlisfari. Þessi börn hafa tilhneigingu til að sjá hvað er rangt við hluti í stað þess að sjá hvað er rétt. Þau láta tilfinningar sínar ekki auðveldlega í ljós svo það er erfitt að sjá hvenær þau eru glöð. Sum eiga mjög erfitt með að taka gríni og eru oftast mjög tapsár. Það er ekki til nein stjórnunartækni fyrir börn með erfitt skap, foreldrar læra bara að lifa með því, með því að gera sér grein fyrir að börnin þeirra geta ekki gert að því hvernig þau líta á veröldina. Þegar barnið kvartar og kveinar yfir því að geta ekki gert þetta eða hitt er gott að benda því á hvað það getur gert eða spyrja það hvað það haldi að það geti gert. Þessi 9 einkenni virka ekki bara ein sér, þau spila líka saman. Óreglusama barnið sem er farið að missa stjórn á skapi sínu vegna hungurs gæti afþakkað mat, vegna ósjálfráðra fyrstu viðbragða, og heldur svo áfram að afþakka matinn vegna þrjósku sinnar (en þrjóska virðist spila inn í öll einkennin).

Hver er munurinn á kraftmiklu barni og barni með athyglisbrest eða ofvirkni?
Það er mjög fín lína þarna á milli, sérstaklega ef í hlut á barn sem hefur   öll 9 einkennin sem lýsa kraftmiklum börnum. Börn með ofvirkni/athyglisbrest hafa oft þessi sömu skapgerðareinkenni. En það sem skilur á milli kraftmikilla barna og barna með athyglisbrest/ofvirkni er hæfileikinn til að einbeita sér að ákveðnu verkefni og klára það. Börn með athyglisbrest/ofvirkni eiga miklu erfiðara með það en kraftmikil börn. Sum eðlileg skapgerðareinkenni eru svipuð þeim sem teljast hegðunareinkenni barna með athyglisbrest/ofvirkni t.d. eru orka/kraftur, athygli, aðlögunarhæfni og þrautseigja eðlileg skapgerðareinkenni en ofvirkni, hvatvísi og athyglisbrestur eru einkenni barna með athyglisbrest/ofvirkni en ekki kraftmikilla barna.   Hvað getum við gert? Okkur er oft sagt að hundsa óæskilega hegðun og þá hverfi hún. En hvernig hundsarðu barn sem er helmingi þrautseigara en þú? Lykillinn að kraftmikla barninu er að skilja af hverju það gerir það sem það gerir. Venjulega fá kraftmikil börn ekki þessi hefðbundnu frekjuköst sem notuð eru í einhverjum tilgangi, t.d. þegar barn segist ætla að halda niðri í sér andanum þar til það verður blátt, ef þú kaupir ekki eitthvað sem það vill. Kraftmikil börn fá það sem má kalla: "að það flæði upp úr köst". Þau verða svo uppfull af tilfinningum, langt umfram hæfileika þeirra til að takast á við þær. Foreldrar kraftmikilla barna verða sérfræðingar í því að koma í veg fyrir að eitthvað gerist, að hagræða aðstæðum þannig að þær komi ekki "köstunum" af stað. T.d. passa upp á að börnin borði reglulega, því þau skynja það ekki sjálf hvenær þau eru svöng, og reyna að koma auga á merki þess að þau séu svöng áður en þau eru orðin það svöng að þau fá kast. Þegar þau verða fyrir of miklu áreiti verður að taka þau frá aðstæðunum og gefa þeim tíma til að róa sig niður. Við klippum miða úr fötunum þeirra ef þeir trufla þau o.s.frv.

En lífið er ekki fyrirsjáanlegt, og stundum lendum við í aðstæðum sem við höfum ekki stjórn á eða getum haft áhrif á. Kraftmikla barnið er kannski í lagi eina sekúnduna en þá næstu er allt ómögulegt. Ánægjuleg fjölskylduferð getur snúist í andstæðu sína ef eitthvað óvænt gerist, breyting á áætlun, hávaði í umhverfinu, skyndilegt hungur eða þreyta. Líf með kraftmiklu barni er ergjandi, spennandi, pirrandi og oft mjög líflegt. Börnin hafa marga frábæra eiginleika, þau eru skapandi, hugmyndarík, úrræðagóð og fjörug. Sem fullorðin munu þau leggja heiminn að fótum sér.

0heartline1f.gif (3286 bytes)

Uppfært
25.02.2003

© 1999 Arndís Kjartansdóttir

Smelltu á húsinu til að komast á upphafssíðu