Föndurhugmyndir fyrir börn

0starheart1.gif (3389 bytes)

Bleiki pardusinnEfnisyfirlit:Bleiki pardusinn

Páskaskraut úr eggjaskurn Töframálun
Páskabrauð að hætti barna Föndurgúmí stimplar
Páskaegg Páskar 1998 Páskaegg Fingrabrúður úr gipsi
Sjónauki sem gefur
veröldinni nýjan lit
Blástursmálun
Hveitibatik Sandmynd
Álpappírsmynd Sandpappírsmynd
Tímarita öskjur úr
cheeriospökkum!!
Jólaskraut úr gömlum
kortum
"Stress boltar" Jólavatnskúla
Minnisspil Jólaknöll
Heimagerð krít Fingramálning
Haustið Föndur tenglar

Páskaskraut úr eggjaskurn Hentar börnum frá 2-3 ára aldri með hjálp.

Þetta þarft þú: Heil eggjaskurn þ.e. aðeins búið að fjarlægja toppinn, eggjabikar, bómull, Karsa fræ(fást í blómabúðum), tússliti, málningu eða efni til að skreyta eggið.

Aðferð: Byrjið á því að skreyta eggið eins og þið viljið, skemmtilegt er að teikna andlit á eggið þá er eins og það vaxi hár á hausnum á honum þegar fræin fara að spíra. Þegar búið er að skreyta eggið er bómull sett í botninn, bleytt dálítið í með vatni og fræjunum stráð ofan á bómullina. Síðan er bara að stilla egginu upp á góðum stað og muna að vökva reglulega þannig að bómullin þorni ekki, og eftir 2-3 daga fara fyrstu fræin að vaxa og fyrr en varir er komin þessi fína páskaskreyting.

Lest

Páskabrauð að hætti barna hentar öllum börnum með aðstoð fullorðinna, úr Morgunblaðinu 4.apríl 1993.

Efst á síðu

Uppskrift í fimm lítil brauð: 1 egg, 1 eggjahvíta, 1/2 dl. sykur, 7 dl. hveiti, 1 msk. þurrger, 1 tsk. salt, 30 g. smjörlíki, 1 1/2dl. mjólk, 1 eggjarauða + 1 tsk. vatn til að pensla með, matarlitir til að skreyta eggin með, rúsínur og negulnaglar til skrauts.

Aðferð: Brjótið eitt egg í skál, takið annað egg og skiljið eggjarauðuna frá hvítunni, setjið hvítuna saman við eggið en rauðuna á disk og geymið. Blandið saman hveiti, þurrgeri og salti í aðra skál, hellið síðan eggjahrærunni út í. Bræðið saman smjörlíki og mjólk, hitið uns fingurvolgt, hellið mjólkurblöndunni svo saman við hveitið og hrærið vel. Hnoðið saman uns deigið sleppir hendi. Skiptið deiginu í fimm hluta og leyfið börnunum að móta úr því einhverjar fígúrur. Setjið því næst deig fígúrurnar á bökunarplötu klædda bökunarpappír, og setjið eitt hrátt egg sem búið er að skreyta með matarlitum ofan á deigið ( notið pensla eða eyrnapinna til að mála með), undir eggið má gjarnan stinga málshætti, en munið að láta letrið snúa niður. Penslið svo brauðið með eggjarauðunni og vatninu og notið rúsínur og negulnagla fyrir augu og þ.h. Látið svo brauðið lyfta sér undir stykki á meðan ofninn er að hitna. Hitið bakaraofninn að 210 C, setjið svo brauðið í ofninn miðjan í ca. 15-20 mínútur og þá ætti eggið að vera rúmlega linsoðið þegar brauðið kemur úr ofninum. Tilvalinn morgunverður á páskadagsmorgun.

Efst á síðu

Lest

Töframálun hentar fyrir börn frá 2-3 ára.

Það sem þú þarft: Kerti, Vatnslitir/vatnsmálning, pappír (ekki glansandi), pensla eða málningar rúllur.

Aðferð: Byrjið á því að teikna með kertinu á pappírinn, málið svo yfir með vatnslitum. Vaxið hrindir frá sér málningunni og þá "töfrast" myndin fram. Einnig má nota vaxliti í stað kertis, og blek í stað vatnslita.

Efst á síðu

antrline.gif (7249 bytes)

Fingrabrúður úr gipsi hentar fyrir börn frá 3 ára

Það sem þú þarft: Gipsbindi sem fást í apótekum, plastfilmu, vatn í skál, ýmislegt sem þér dettur í hug að nota til að skreyta brúðuna, s.s. efnis-afganga, garn, hrísgrjón, makkarónur osfrv.

Aðferð: Vefjið dálitlu af plastfilmu utan um fingur barnsins, eða mjóa spýtu. Klippið gipsbindið niður í litla búta og leyfið barninu að bleyta þá í vatni og vefja utan um fingurinn/spýtuna. Þegar myndast hefur nógu þykkta lag af gipsi utan um fingurinn, er gipsið tekið af fingrinum og látið þorna í ca. sólahring. Þegar það er orðið þurrt, má skreyta brúðuna, teikna á hana andlit of klæða hana í föt. Gott er að lakka yfir gipsið eftir að brúðan hefur verið máluð, þannig smitast málningin ekki. Ekki er nauðsynlegt að nota lakk, það má líka nota lím til að lakka með.

Efst á síðu

antrline.gif (7249 bytes)

Sjónauki sem gefur veröldinni nýjan lit hentar fyrir börn frá 3 ára

Það sem þú þarft: eldhús- eða klósettrúllu hólkar, Sellófan í einum eða fleiri litum, skæri, lím, heftara.

Aðferð: Límið eða heftið 2 hólka saman, hlið við hlið. Klippið út tvo hringi af sellofani í einum eða tveimur litum. Límið svo sellofanbútinn við annan endann á hólkunum. Þá er sjónaukinn tilbúinn, og veröldin skiptir um lit. Leyfið barninu að prófa hvað gerist ef það setur sellófan bút með öðrum lit yfir hinn, t.d. gulan yfir rauðan=appelsínugulur, rauðan yfir bláan=fjólublár ofrv.

Efst á síðu

antrline.gif (7249 bytes)

Blástursmálun hentar börnum frá 4 ára

Það sem þú þarft: Pappír, vatnsmálning (eða blek), sogrör.

Aðferð: Byrjið á að þynna málninguna með vatni þannig að hún verði frekar þunn, til að auðvelt sé að blása hana. Setjið örlítið af málningunni á blað með skeið (eða einhverju) og látið barnið fá rör sem það blæs svo málninguna út með. Hvetjið barnið til að "elta" málninguna með rörinu og blása því í hinar ýmsu áttir. Notið gjarnan fleiri liti og blásið þeim í kross og allaveganna. Þessar myndir verða oft mjög fallegar og ekki spillir fyrir að það er alveg frábær æfing fyrir munninn að blása, það eykur tilfinningu barnsins fyrir munnsvæðinu og því að beina loftinu út um munninn.

Efst á síðu

Lest

Sandmynd hentar börnum frá 3 ára

Það sem þú þarft: Pappír (helst karton), lím, þurran fínan sand, t.d. úr sandkassa eða fjöru.

Aðferð: Leyfið barninu að "teikna" með lími á blað, notið annað hvort lím í flösku eða berið á með pensli. Þegar barnið er búið að teikna mynd með líminu, leyfið því þá að strá sandi yfir myndina þannig að það þeki hana. Sturtið svo sandinum af blaðinu og þá kemur sandmyndin í ljós.

Lest

Hveitibatik hentar börnum frá 3 ára

Það sem þú þarft: Plastbrúsa (t.d. undan hamborgarasósu o.þ.h.), hveiti, vatn, léreftsbút (eða annan efnisbút), málningu.

Aðferð: Hristið/hrærið saman hveiti og vatni þannig að úr verði miðlungs þykkur jafningur sem auðvelt er að sprauta í gegnum gatið á brúsanum ( má samt ekki vera of þunnur). Leyfið barninu að sprauta hveiti jafninginum á léreftsbútinn og búa til mynd eða mynstur. Síðan þarf hveitið að fá að þorna alveg, tekur ca. sólahring. Þegar hveitið er þornað, er málað yfir allan efnisbútinn, gjarnan í mörgum litum. Málningin er látin þorna, og þegar hún er þurr er hveitið brotið af efninu. Þá er myndin tilbúin, þessi líka fína batikmynd.

Efst á síðu

Lest

Sandpappírsmynd hentar börnum frá 2 ára

Það sem þú þarft: Sandpappír, olíuliti (klessuliti).

Aðferð: Teiknið með olíulitunum á sandpappírinn, hann gefur myndinni fallega áferð.

Lest

Álpappírsmynd hentar börnum frá 2 ára aldri

Það sem þú þarft: Álpappír, vatnslitir, penslar, karton, heftari.

Aðferð: Leyfið barninu að krumpa saman álpappírinn í kúlu. Sléttið svo úr pappírnum og heftið hann á karton. Leyfið svo barninu að mála mynd á álpappírinn.

Efst á síðu Lest

Tímarita öskjur hentar börnum frá 2 ára aldri

Það sem þú þarft: Tómir kassar utan af cheeriosi eða öðru morgunkorni, málning, veggfóður, efnisbútar eða annað efni til að klæða kassann að utan.

Aðferð: Byrjið á því að klippa úr hluta af kassanum svo hann verði að lögun eins og tímarita öskjur, það er ágætt að nota gamla tímarita öskju til að mæli við og strika eftir. Þegar búið er að fá rétt form á kassann, er hægt að byrja að skreyta hann að vild. Ef kassinn er málaður er gott að pensla yfir málninguna með lími eða lakki þegar málningin hefur þornað, þannig smitar  hún ekki og flagnar síður. Skemmtilegt er að leyfa barninu að líma efnisbúta eða límmiða á öskjuna til að skreyta hana, einnig er til sjálflímandi pappír í rúllum í ýmsum litum í byggingavöruverslunum. Látið hugmyndaflugið ráða við skreytingu kassanna, og útkoman er skemmtilegar og hagkvæmar öskjur sem kosta lítið, og ekki spillir að í leiðinni erum við að endurvinna og vernda náttúruna.

Efst á síðuLest

Stressboltar frá 2 ára aldri (yngri börn bíta gat á blöðruna!)

Það sem þú þarft: Blöðrur, hveiti, tússliti.

Aðferð: Settu opið á blöðrunni yfir stútinn á trekktinni, og helltu svo hveiti niður í blöðruna. Reynið að þjappa hveitinu vel inn í blöðruna. Þegar hún er orðin full af hveiti, vel þjöppuðu, þá bindið þið hnút á blöðruna og leyfið svo barninu að skreyta hana að vild með tússlitunum. Þessar blöðrur er svo gaman að kreista og klípa og mjög gott að segja barninu að það megi alltaf kreista og klípa blöðruna ef því líði illa.

Efst á síðu

Lest

Minnisspil frá 2 ára aldri

Það sem þú þarft: Karton pappír eða einhver miðlungs þykkur pappír t.d. er hægt að nýta pappírinn frá Cheeriospökkum og fleiri umbúðum.  Myndir, nú er að láta hugmyndaflugið ráða og finna skemmtilegar myndir s.s. myndir úr pöntunarlistum, eigin teikningar, kort, gamall gjafapappír, útprentanir úr tölvu osfrv. Límstifti, bókaplast, skæri.

Aðferð: Byrjið á því að klippa út jafnstóra ferhyrninga úr karton pappírnum (stífa pappírnum) ca. 40 ferhyrninga fyrir 20 samstæður, síðan er að finna hentugar myndir til að nota á spjöldin. Þú   þarf að finna tvær eins myndir af hverjum hlut til að hægt sé að mynda samstæðu, t.d. tvo þríhyrninga af sama lit osfrv. Eða að finna tvær myndir sem passa saman eins og disk og hnífapör, skó og fót osfrv. Það er hægt að gera þetta á allan mögulegan máta, sniðugt er að búa til spil sem þjálfa ákveðin atriði hjá barninu, eins og t.d. litaþekkingu, form, tölur (gæti verið tölustafur og jafnmargir punktar á hinu spjaldinu) og jafnvel bókstafi.  Þegar þú ert búin að klippa út myndirnar og líma þær á karton-ferhyrningana er mjög gott að plasta spjöldin með bókaplasti til að þau endist betur. Spilið er svo spilað þannig að öll spjöldin eru lögð á hvolf á borð og þátttakendur skiptast á að snúa við tveimur spjöldum og reyna að fá samstæðu, mikilvægt er að barnið nefni þá hluti sem eru á myndinni til að örva málþroska og hugtakaskilning. Sá vinnur sem fær flestar samstæður.  Einfalt, skemmtilegt og umfram allt ódýrt og umhverfisvænt!

Efst á síðu

Lest

Jólaskraut úr gömlum jólakortum frá 5 ára

Það sem þú þarft: Gömul notuð jólakort, lím, skæri, gatara (lítil göt), garn, blúndu.

Aðferð: Veldu jólakort með fallegum myndum, límdu saman tvö kort þ.e. framhliðina á tveimur kortum þannig að þú hafir myndir á báðum hliðum, búðu til eitthvað form til að strika eftir eða finndu lítinn hring til að strika eftir (má nota fleiri form), strikaðu svo eftir forminu á þeim hluta myndarinnar sem þú vilt að skreyti jólaskrautið, klipptu hringinn út örlítið frá brúninni, gataðu (eða stingdu út með nál) göt allan hringinn, saumaðu svo einfalt spor allan hringinn með fallegu garni og saumaðu svo blúnduna fasta á brúnina eða límdu hana á. Skrautið má svo nota til að búa til jólaóróa, skraut á jólatré eða hvað annað sem ykkur dettur í hug.

Efst á síðu

Lest

Haustverkefni

Á haustin er tilvalið að fara í gönguferðir með börnunum og safna ýmsum plöntum, laufblöðum, stráum og fleiru sem við finnum í náttúrunni. Litir haustsins eru svo skemmtilegir og hægt að vinna fjölmörg skemmtileg verkefni úr efnivið náttúrunnar. Þegar búið er að safna góðu magni af haustgróðri þarf að þurrka gróðurinn. Gott er að nota dagblöð eða pöntunarlista til að leggja blöðin inn í og setja svo eitthvað þungt ofan á.

Laufmynd I hentar börnum frá 2 ára.

Það sem þú þarft: Þurrkuð laufblöð, bókaplast, karton pappír til að gera ramma.

Aðferð: Klippið út 2 jafn stóra búta af bókaplasti í þeirri stærð sem þið viljið, takið pappírinn af límhliðinni  á öðru plastinu og leyfið barninu að raða laufblöðunum á límhliðina á bókaplastinu. Þegar barnið er búið að raða nokkrum laufblöðum á plastið þá límið þið hinn bókaplasts bútinn yfir laufblöðin og snyrtið endana. Síðan má búa til ramma utan um myndina ef þið viljið. Hengið svo myndina í glugga eða þar sem þið viljið.

Laufmynd II hentar börnum frá 2-3 ára

Efst á síðu

Það sem þú þarft: Þurrkuð laufblöð, lím, karton.

Aðferð: Leyfið börnunum að líma laufblöð á karton eftir eigin hugmyndaflugi. Munið að stjórna límnotkun hjá yngri börnunum og setja jafnvel límið á pappírinn fyrir þau.

Laufmynd III hentar börnum frá 4 ára

Það sem þú þarft: rök laufblöð í mörgum litum(ný týnd) efnisbút (hvítt eða ljóst bómullarefni), hamar/spýtuklump, skæri, lím, gömul laufblöð, þykkan pappír.

Aðferð: Klippið út efnisbútinn í þá stærð sem þið viljið, settu gamalt dagblað á borðið og efnisbútinn ofan á það. Setjið svo eitt laufblað á efnið, hamrið á laufblaðið með hamri eða trékubbi, passið að slá á allt laufblaðið. Gerið þetta við eitt laufblað í einu, þau mega líka fara ofan á hvort annað. Stundum festast bútar af laufblöðunum á efninu, láttu þau bara vera, þau þorna og þá er auðvelt að bursta þau af. Þá er myndin tilbúin og þú getur búið til ramma utan um úr karton pappír ef þú vilt.

Laufstimplun hentar börnum frá 4 ára aldri

Efst á síðu

Það sem þú þarft: Þekjuliti, pappír, þurrkuð laufblöð, pensla/svamp, undirskálar(diska)

Aðferð: Gott er að nota undirskálar til að setja málninguna á, leyfið svo börnunum að mála laufblaðið með þekjulit annað hvort með pensli eða "dúmpa" á það með svampi, en munið að þurrkuð laufblöð eru mjög viðkvæm og brotna auðveldlega, minnið börnin á að fara varlega. Stimplið svo laufblaðið á pappírinn, svo er líka hægt að leggja laufblaðið á pappírinn og "dúmpa" með svampinum og málningu í kring um laufblaðið. Einnig má nota efnisbút til að stimpla á.

Laufþrykk hentar börnum frá 4 ára aldri

Það sem þú þarft: vaxliti, pappír, þurrkuð lauf.

Aðferð:   Setjið laufblöðin undir pappírinn og litið yfir þau með vaxlit, útlínur laufsins koma í gegn.

Lest

Föndurgúmí stimplar hentar börnum frá 3 ára aldri

Efst á síðu

Það sem þú þarft: filmu box, födurgúmí (fæst í bókabúðum, föndurbúðum), lím

Aðferð:   Klippið út mismunandi mynstur út úr föndurgúmíinu, sem passar á lokið á filmuboxinu. Límið svo föndurgúmíið á lokið á filmuboxinu. Þá er kominn fínn stimpill, notið málningu eða stimpilpúða. Gott er að nota pensil til að bera málninguna á stimpilinn.

Lest

Jólavatnskúla hentar börnum frá 5 ára aldri

Það sem þú þarft: Litla glæra krukku t.d. undan barnamat, lítið skraut, lím, glimmer, vatn.

Aðferð:   Byrjið á því að líma skrautið inn í lokið á krukkunni og látið það þorna. Setjið svo smá glimmer inn í krukkuna og bætið við vatni, skrúfið lokið á krukkuna-mjög fast eða límið jafnvel fast. Snúið á hvolf og þá er kominn jólakúla.

Lest

Jólaknöll hentar börnum frá 3 ára aldri

Efst á síðu

Það sem þú þarft: klósettrúllu (tóma), jólapappír, pakkaborða (krullubönd) límband, smá dót/nammi til að hafa inn í knöllunum, og jafnvel lítinn málshátt eða eitthvað skemmtilegt.

Aðferð:  Byrjið á því að setja inn í rúlluna það sem þið viljið hafa inn í , pakkið rúllunni inn í jólapappír og hnýtið fyrir endana með krullubandi. Passar vel á jólaborðið sem skraut við diskana.

Lest

 

Fingramálning hentar börnum frá 2 ára aldri

Efst á síðu

Það sem þú þarft: 2 matskeiðar af sykri, 1/3 bolli maizenamjöl(kornsterkja), 2 bollar kalt vatn, 1/4 bolli glær uppþvottalögur, matarlitir.

Aðferð:  Blandið saman sykur og kornsterkju í litlum potti, bætið smám saman við vatni. Hitið við lágan hita og hrærið þar til blandan verður jöfn næstum gegnsætt gel (ca. 5 mínútur) Þegar blandan hefur kólnað, hrærið þá saman við uppþvottalegi. Skiptið blöndunni jafnt í box og bætið við mismunandi matarlit.

Lest

Heimagerð krít

Það sem þú þarft: Rúllur innan úr salernispappír, málningarlímband, vaxpappír (smjörpappír) 3/4 bolli volgt vatn, 11/2 bolli gips duft, 2-3 teskeiðar duftmálning.

Aðferð: Byrjið á því að búa til mót fyrir krítina, límið fyrir annan botninn á hólknum og rúllið upp vaxpappír til að setja inn í hólkinn svo krítin festist ekki við pappann. Hellið volgu vatni í plastskál, bætið gipsduftinu smátt og smátt við þar til duftið hefur blandast vel við vatnið. Hrærið vel með skeið blandið svo duft litnum saman við, ef þið viljið marga liti verður að blanda hvern lit í sér skál. Hellið svo blautu gipsinu í mótin, bankið lauslega á hliðar mótsins til að losa loftbólur úr gipsinu. Látið svo krítina harðna í nokkra daga og losið loks úr mótinu. Þá er hún tilbúin til notkunar.

Lest

Hér mun ég bæta við fleiri hugmyndum á næstunni.

Lest

Tenglar á síður sem fjalla um föndur fyrir börn.

Efst á síðu

IDEA BOX- Early Childhood Education and Activ. Kids CRAFT - The Ultimate Kids Resource.
Ben Franklin Crafts - KIDS Jana's Craft Connection
Preschool Page - Index Gryphon House Free Activities!

CRAFTER.COM, A Friendly Place For Crafters

Crafts Index

Fun for Kids Arts & Crafts

The Rainy Day Resource Page

Crayola Art Education

DLTK's Pokemon Crafts for Kids
Crafters Network Top 100 Craft Sites Dave's snowflake page, Images of paper snowflakes by D.C. Stredulinsky
Halloween Costumes  
Making Friends and Other Crafts for Kids

0starheart1.gif (3389 bytes)

Skrifaðu í gestabókina mína

Guestbook by GuestWorld

Skoðaðu gestabókina mína

Efst á síðu

0starheart1.gif (3389 bytes)

e-mail

0starheart1.gif (3389 bytes)

Gestir síðan 24.mars 1998

© 1998 Arndís Kjartansdóttir

Uppfært

14.10.2004

Smelltu á húsinu til að komast á upphafssíðu