Bókalisti
(er í vinnslu)

Hér fyrir neðan er listi yfir bækur sem fjalla um skaperfið börn. Ég ætla mér að safna fleiri bókum á þennan lista en einnig verður að finna upplýsingar um það hvar hægt er að nálgast þessar bækur. Ég hvet ykkur endilega til að kíkja á þessar bækur því margar eru alveg frábærar og nauðsynleg hjálp fyrir foreldra skaperfiðra barna og einnig til stuðnings fyrir kennara og aðra sem vinna með börnum. Allar ábendingar um góðar bækur sem fjalla um uppeldi eru vel þegnar, arndisk@simnet.is
![]() |
Stanley Turecki MD. "The Difficult Child" þessi bók er sérlega skemmtileg og opnaði fyrir mér nýja sýn á skapmikil/kraftmikil börn. Þessa bók er hægt að fá að láni hjá bókasafni Fósturskóla Íslands og Bókasafni Hafnarfjarðar og svo panta hjá m.a. Bóksölu stúdenta. |
![]() |
Mary Sheedy Kurchinka "Raising your spirited child" gefur góða lýsingu á kraftmikla barninu, er m.a. með einfalt próf þar sem þú getur athugað hvort barnið þitt fellur inn í hóp kraftmikilla barna. |
![]() |
"Normal children have problems too" eftir Stanley Turecki, hún er líka til á Bókasafni Hafnarfjarðar. Þessi bók er frábær fyrir foreldra til að læra að skilja hegðun barna sinna og bregðast við henni á réttan hátt. |
![]() |
The Challenging Child eftir Stanley I. Greenspan, er mjög góð bók sem fjallar um 5 mismunandi persónugerðir barna og hvernig við getum lært að skilja börnin og njóta sérkenna þeirra. |
![]() |
The
explosive child eftir Ross W. Greene,Ph.D. |
![]() |
Transforming the difficult child eftir Howard Glasser, er frábær bók sem fjallar um uppeldisaðferð sem kallast "The nurturing heart approach" sem byggist á atferlismótun. Þessi bók er mjög skýr og fjallar á frábæran hátt um hvernig foreldrar og aðrir sem vinna með börn geta snúið neikvæðri hegðun barnsins í jákvæða. Bókin kennir nákvæmlega hvernig maður fer að og er frábær að öllu leiti. Fæst hér: http://www.boksala.is/ |
![]() |
Siblings Without Rivalry/How to Help Your Children Live Together So You Can Live Too; Adele Faber, et al; Þessa bók hef ég ekki lesið ennþá, en ég hef gluggað í hana og líst vel á. |
![]() |
1-2-3 Magic ISBN: 0963386190, 2nd Edition, 1996 by Thomas W. Phelan. Þessa bók hef ég ekki lesið en hún fjallar um skynsama, mannúðlega og árangursríka leið til að aga öll börn á aldrinum 2-12 ára (sérstaklega árangursrík fyrir erfið börn og þreytta foreldra þeirra). Foreldrar geta lært hvernig hægt er að stoppa hegðun sem þarf að stoppa og styrkja hegðun sem þarf að styrkja. Þetta er eins einfalt og 1 2 3. |
![]() |
SOS hjálp fyrir foreldra er mjög góð handbók fyrir alla foreldra en sérstaklega foreldra barna sem er krefjast "meira" af uppalendum sínum, s.s. ofvirkra barna, kraftmikilla barna eða skapmikilla barna. Á vegum félagsvísindastofnunar H.Í. eru haldin námskeið sem kallast SOS hjálp fyrir foreldra og byggjast þau á atferlismótun og hugmyndafræði Dr. Lynn Clark's. Á námskeiðinu fær fólk bókina á íslensku en hana er líka hægt að panta á erlendum síðum á ensku. |